Vikan


Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 14

Vikan - 18.04.1946, Blaðsíða 14
VIKAN, nr. 16, 1946 14 Hvar er hin stúlkan á myndinni? KÖNGULÓIN. (Framhald af bls. .)). Ekkert! — Að sýna því vingjarnleik og meðaumkun var það sama og að kasta perlum fyrir svín. Að afþakka þrjátíu og fimm dollara fyrir látúnshring með svikn- um safír! Hann þorði að ábyrgjast, að fað- ir barnsins hafði ekki greitt meira en sex dollara fyrir alla dýrðina.“ Hann rölti frá netinu og hristi höfuðið. „Heimskinginn þinn!“ muldraði hann við sjálían sig. „Hvað gagnar það að vera viðkvæmur.“ Og köngulóin hlassaði sér þreytulega niður í stól, til að bíða eftir nýju fórnar- dýri. 321; Krossgáta Vikunnar Lárétt skýring: 1. stefna. — 5. stólpí. — 7. óróleiki. — 11. röngin. — 13. heiðurs- merki. — 15. lendi. — 17. ullariðnaSur. — 20. danskur landnámsmaður. — 22. væringum. — 23. missir.— 24. ljótan vana. — 25. spor. — 26. kyn. — 27. snið. — 29. skyld- menni. — 30. glampi. — 31. kvikar. — 34. benda. — 35. skráir. — 38. geymslu. — 39. kvæði. — 40. vizku. — 44. hljóp. — 48. vonda. — 49., frú. — 51. bygging. — 53. þæg. — 54. beita. — 55. rándýr. — 57. biðja. — 58. skipta. — 60. hræðslu. — 61. fora. — 62. hug- mynd. — 64. tíndi. — 65. vopn. — 67. gáfur. 69. rönd. — 70. fé. — 71. óvinsamlegt. JLóðrétt skýring: 1. skriðdýr. — 3. seglviður. —- 4. brún. — 6. há- — 7. heiður. — 8. tveir eins. — 9. þylja. — 10. brúsk. — 12. dægrið. —13. hlýjaði. — 14. blað. —- 16. vefengir. — 18. brynna. — 19. snasir. — 21. systir. — 2C. hlass. — 28. húkti. — 30. hundur. — 32. trufla. — 33. grannvaxið tré. — 34. hólf. — 36. strik. — 37. leiði. — 41. loga. — 42. óþokka- brögð. — 43. hnappurinn. — 44. myndi. — 45, lopann. —- 46. starf. — 47. þyrpihg. — 50. veita eftirför. — 51. galar. — 52. hálent nes. —- 55. ásýnd. — 56. bundið. — 59. sneru. — 62. staðar- ákvörðun. — 63. góðlynd. — 66. sagnmynd. — 68. orka. Lausn á 320. krossgátu Vikunnar. SÆSKKÍMSLDE). (Framliald af bls. 7). legt er, algjörlega ófús á það, að þoka sér í áttina til skrímslisins. — En þama fetuðum við okkur nú smám sam- an áfram. Og svo að lokum eftir nokkum tíma kom tunglið enn fram úr skýjunum. — Það var sem sé í dálitlum feluleik við okkur og læddist því stundum á bak við skýin, en kom svo kann- ske aftur, þegar minnst varði, út úr þeim, á nýjan leik. — Og, sem sagt, þegar nú tunglið kom þama fram úr skýjunum aftur, þá vorum við komnir töluvert nærri dýrinu — skrímslinu — syo. að þegar geislar tunglsins nú glömpuðu á því, þá brá okkur heldur en ekki í brún, því að skepnan, sem við sáum þama fyrir framan okkur var svo grunsamlega lík einum venjulegum úti- gangsklár, áð okkur hnykkti við, og urðum reyndar alveg steinhissa, já agndofa. — Við stóð- um alveg kyrrir eitt augnablik eða tvö, og svo hlupum við þessa tíu metra, eða hvað það nú var langur spölur, sem við áttum eftir, til skepnunn- ar, hlupum það í hendingskasti, því að þó að skepnan væri að vísu mjög lík hesti — útigangs- hrossi — þá voru þó frávikningar, atriði, sem ekki komu heim við einn venjulegan útigangs- klár. — Og svo vorum við komnir að skepnunni! — Og það var svo sannarlega einn útigangsklár, sem það verið gat.— Ein allir spenarnir þá á kviðnum? Þvi að ekki eru nú útigangshestar — hryssur — vanar því að bera röð af spenum eftir endilöngum kviðnum og jafnvel uppá síður! Nei, ónei, en það vom heldur ekki spenar! Nei, hesturinn hafði auðsjáartlega orðið að vera um langt skeið úti í frostum og veðurvonzku og var því orðinn sílaður að utan, eins og það er kallað, það er að segja, hárin, einkanlega á kviðnum og að nokkru einnig á síðunum voru gödduð, um- lukin ís og snjó og minntu á það þegar frost- drönglar hanga niður úr þakskeggjum húsa. Og þetta var nú það, sem Finnbogi hafði bent mér á að væru spenamir á skepnunni — á sæskrímsl- inu. — Þá var nú komin skýring á því atriðinu. Lárétt: — 1. lákúra. — 6. hlaupár. — 11. afar. — 12. laun. — 13. hraði. — 14. óskar. — 16. glopra. — 19. kaðall. — 21. sára. — 27. remma. — 25. skái. — 26. unn. — 27. nám. — 28. agn. — 29. masa. — 33. brag. — 34. rokk. — 35. ósjó. — 36. þang. — 40. gesh — 44. una. — 45. álm. — 47. róa. — 48. nagg. — 50. hnubb. — 52. ömun. — 53. granir. 55. efling. — 57. ríðum. — 59. stafn. — 60. pata. — 61. öllu. 62. rómaður. — 63. kals- inn. En hvað svo um hið undarlega hljóð úr barka sæskrímslisins ? Hið einkennilega hljóð, sem var líkast sambandi af fuglsgaggi og bjölluhringingu. Jú, skýringin á þvi var sú, að það myndaðist bara blátt áfram þegar hesturinn hreyfði sig, því að þá slóust þessir hálfgerðu klaka og snjódröngiar á kviði hans saman og mynduðu þetta undarlega hljóð. — (En hitt hljóðið, sem gaf tilefni til þess að breytingin kom og ég lagði af stað til „skrímsl- isins“ með Finnboga í eftirdragi var einhver ávæningur af hneggi, sem ég hafði þóst heyra frá skepnunni — og ætlaði þó yarla að trúa mín- um eigin eyrum, að það gæti verið það. — En augun í sæskrímslinu, augun rauð, jú, skýringin á því var einungis sú, að augun í klárnum voru orðin eitthvað blóðhlaupin af hagli og veðrum og yfirleitt af því skjólleysi og mótgangi, sem hafði mætt honum. — En Finnbogi var enn hálf-tregur til að trúa. Klárinn hafði birzt okkur svo sem ein undramynd fyrst er við sáum hann — eins og reglulegt sjóskrimsli, en nú var hann bara orð- inn að venjulegum útigangsklár, en að vísu með óvenjulegum útigangi, samanber klakadrönglana, svo að nú gat Finnbogi varla annað en trúað. — Við klöppuðum báðir vesalings klárnum sem vingjarnlegast. Og svo spurði ég Finnboga hvort hann hefði ekki snæri á sér. Jú, það vildi þá svo vel til að hann hafði einmitt snæri á sér. Ég bjó svo til einskonar beizli, einteyming, úr snær- inu og batt upp i klárinn. — Og síðan héldum við í hátíðlegri prósesíu, Lóðrétt: — 1. langsum. — 2. karpa. — 3. úfar. — 4. raðar. — 5. Ari. — 6. hló. — 7. laska. — 8. auka. -— 9. unaðs. — 10. rugling. — 13. horns. — 15. rakar. — 17. lána. — 18. smán. — 20. lága. — 23. en. — 24. m. m. — 30. arg. — 31. æki. — 32. ást. — 33. bóg. — 36. þungbær. —37. anar. — 38. nagar. — 39. hlut. — 41. ermin. — 42. sóun. — 43. tanginn. — 45. án. ■— 46. M. b. — 49. gnípa. — 50. hrutu. — 51. betla. — 52. Ölfus. — 54. ið- að. — 56. fall. — 59. sök. Svör við Veiztu—? á bls. 4: 1. Nei, aðeins kvenflugumar eða þær, sem sjúga blóð, flytja með sér sjúkdóma. 2. Þeir em 7. 3. 300 m. 4. Ari, sonur Jóns Arasonar, þegar hann var leiddur út að höggstokknum. 5. Við fyrstu sýn 6. Það er áletraður basaltsteinn, sem einn af liðsforingjum Napoleons fann í Egiftalandi 1799. Er egypzkt myndaletur á honum, og er hann nú geymdur i British Museum. 7. Eftir Stefán ölafsson, prófast í Vallanesi. 8. Hjákona Periclesar og síðar eiginkona hans. 9. Bjarni Pálsson var móður-afi Bjarna Thor- arensen. 10. Fullveldiskrafa (henni var fullnægt 1918). Heimastjórnarkrafa (fullnægt 1903). Lög- gjafarkrafa (fullnægt 1874). eins og við köllum það, með hið meinlausa og tamda „sæskrímsli", þann stutta spöl, sem við nú áttum eftir, inn í þorpið. — Mér tókst að vísu ekki að svo stöddu að ná í eigandann, en klárnum kom ég fyrir yfir nóttina í hesthúsi hjá einum kunningja minna. Og það má ætla og það sáust reyndar og vel merki þess, að blessuð skepnan hafi fagnað því, að fá nú linun og hvíld á harðréttinu, og að fá að komast undir þak, og að fá væna tuggu af heyi, og að þurfa ekki að ganga um með frostdröngla neðan á kviðnum — og líta út eins og sæskrímsli, enda hneggjaði klárinn, Gráni hét hann, ánægjulega að skilnaði, þegar við Finnbogi kvöddum hann og héldum á braut úr hesthúsinu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.