Vikan - 09.05.1946, Síða 1
T T ann er fæddur 29. júní 1895 á Litlu-
■*■ Seylu (nú Brautarholti) á Langholti
í Skagafirði, sonur Sigurðar Jónssonar,
bónda og oddvita, og Jóhönnu Steinsdóttur
konu hans. Sigurður vakti þegar á ungl-
ingsárum mikla athygli fyrir sönggáfu
sína.
CIGURÐUR fór ungur til Danmerkur og
^ stundaði þar söngnám hjá Herold
söngvara, sem þá var mesti söngvari Dana.
Dvaldi hann þar í nokkur ár, þó ekki sam-
fleytt, því í millitíð kom hann oft hingað
upp og hélt söngskemmtanir víða um land.
Hann hefir og einnig dvalið í Tékkósló-
vakíu við söngnám, en þar lærði hann hjá
hinum fræga kennara Gorra. Sigurður fór
til Ameríku árið 1932 og dvaldist þar í 4
ár, aðallega í Kanada, og fékkst þar mest
við söngkennslu, en hélt þar einnig söng-
skemmtanir og söng með kórum, sem ein-
söngvari. Þá fór hann til Englands og söng
þar m. a. inn á plötur, ýmsar aríur, sem
aldrei hafa flutzt hingað til lands. Hann
dvaldi hér um ár, en fór þá til Þýzkalands
í ársbyrjun 1938 og hefir dvalizt þar síðan.
Þar starfaði hann fyrst við óperuna í
Oldenburg, og söng þar sem fyrsti hetju-
tenor. Síðan hefir hann sungið við mörg
stærstu óperuhús Þýzkalands og alltaf
sem fyrsti tenor. Hann hefur og sungið í
Danzig bæði í óperu og einnig haldið þar
konserta. Eftir því, sem næst verður kom-
ist hefir hann sungið í milli 40—50 óperum
í Þýzkalandi frá 1938. Á árunum 1942—
1943 mun hann hafa sungið eitthvað á veg-
um Norrænafélagsins í Þýzkalandi og mun
þá hafa farið til Osló, og verið á vegum
félagsins.
Hér fer á eftir útdráttur úr frásögn um
það, sem fyrir söngvarann bar á stríðsár-
unum:
I.
1939—1940 var ég ráðinn sem fyrsti
tenorsöngvari við Ríkisóperuna í Olden-
burg. Um þær mundir sem Noregur var
hertekinn, fór fram hátíðasýning á „Fljúg-
andi Hollendingurinn", og sem tenórsöngv-
ari óperuhússins, átti ég að leika Erik.
Stuttu fyrir sýninguna varð ég veikur, og
Framhald á bls. 3.
SIGURÐUR SKAGFIELD
óperusöngvari
Sigurður Skagfield óperusöngvari