Vikan


Vikan - 09.05.1946, Qupperneq 13

Vikan - 09.05.1946, Qupperneq 13
VIKAN, nr. 19, 1946 13 FELUMYND D ægrastytting 1. Haraldur og konan hans eiga 15 böm og er eitt og hálft ár á milli þeirra allra. Sigurður heitir elzta bamið, en það yngsta Gréta. Sigurð- ur er átta sinnum eldri en Gréta. Hvað er Sigurður gamall? 3. Fimm stúlkur fóru i kvikmyndahús og vom sæti þeirra númeruð frá 18 til 22. Eftir sýninguna tóku þær að ræða um, hvaða ,, númer hver hefði haft. Maria sagði, að hún héfði setið í sæti 18. Manna hélt, að hún hefði hvorki setið í sæti 18 né 22, heldur þar á milli. Petra sagðist hafa verið i númer 20 og Karen í 21. Að lokum sagðist Hagna hafa sctið á milli Petru og Nönnu. Fjórar höfðu rétt fyrir sér, en hver mundi skakkt ? . Sjá svör á bls. 14. Skrítlur. Jóna:. Hún Kata er þó nokkuð eldri en hún lítur út fyrir að vera. Kristín: Já! Og það versta er, að það er auð- séð á henni! * Stúlkan: Stórkaupmaðurinn er ekki í bænum. Maðurinn: Nú er hann það! Næst, þegar hann fer í ferðalag, ætti hann að muna eftir að hafa höfuðið með sér — það er svo leiðinlegt að sjá það gægjast fram undan gluggatjöldunum, þegar hann er ekki heima! * Hann: Má ég bjóða ungfrúnni ís? Hún: Það er eftir því, hvort það er 25 eða 50 aura ís! * Maðurinn (hreykinn): Það er talað um mig 1 blaðinu í dag! Konan: Nú? Maðurinn: Já! Héma stendur, að 3,706,00 far- þegar hafi ferðast með strætisvögnunum á síð- astliðnu ári. Konan: Já, en þú sagðir, að það væri talað um þig í blaðinu. Maðurinn: Já, ég er einn af farþegunum! 2. Á matsöluhúsi borðaði sjö manns. Fyrir páskana keypti það í sameiningu 30 flöskur af brennivíni. Karlmennirnir höfðu útvegað minnst 2 flöskur hver, en þó enginn jafnmargar. Kven- fólkið var duglegra og lagði engin stúlka til minna en þrjár flöskur, en engar jafnt. Til sam- ans útveguðu fröken Hansen og Per Olsen 14 flöskur. Hvað voru margar stúlkur af þessum brennivínskaupendum ? QHj2.(jjywl ícóng,uhmn. BARNASAGA EINU sinn var kóngur, sem var hræðilega gleyminn. Hann gat aldrei munað neitt og fólk sagði: „Ef nefið á kónginum væri ekki fast á honum, myndi hann áreiðan- lega gleyma því!“ Hann gleymdi að fara í stígvélin sin á morgnana og kom út á inni- skónum, þegar hann ætlaði í göngu- ferð. Hann gleymdi að hann hafði sett sykur i kaffið sitt, svo að hann setti í það hvað eftir annað og gerði, það ódrekkandi. Þannig var það einn- ig, þegar hann átti að veita ráð- herrum sínum áheyrn, hann fór þá niður í garðinn og horfði á gullfisk- ana í stað þess að ræða um ríkismál- in. Einu sinni kom hann ekki í hádegisverðinn — hafði hann farið einn síns lið út í skóg og gat enginn fundið hann. Nú hafði hann áreiðan- Iega villzt og ekki getað munað hvert hann átti að fara. Og kóngurinn var horfinn eins og jörðin hefði gleypt hann. Hvar í dauðanum gat hann verið? Þetta voru ljótu vandræðin! Kóngurinn átti dóttur, sem var fögur og göfug og eins vitur og minnisgóð og faðir hennar var gleym- inn. „Þetta dugar ekki lengur!" sagði prinsessan. „Faðir minn er bæði góð- ur og skynsamur, en siðan minni hans hefir hrakað svona, þá er hann óhæfur sem kóngur. Við verðum að kjósa annan, sem gæti stjórnað í staðinn fyrir hann!" „Látum prinsessuna gegna kon- ungsstörfunum!" sögðu ráðherrarnir og þjóðin samþykkti það, því að allir vissu, hvað prinsessan var vitur og góð. „En ég geri þetta aðeins, þangað til faðir minn verður læknaður af þessum sjúkdómi sínum," sagði hún og var það einnig samþykkt. Prinsessan sendi nú boðbera í allar áttir til að spyrjast fyrir um kóng- inn, en hann var alveg horfinn og enginn hafði séð hann. En margir prinsar og riddarar komu og báðu prinsessunnar, því að hún var bæði fögur og auðug. Hún braut heilan um, hverjum hún ætti að taka, en að siðustu sagði hún: „Ég ætla ekki að giftast neinum nema þeim, sem getur fundið föður minn — en það er ekki nóg-með það, sá verður einnig að lækna hann af þessu minnisleysi!" Nú fóru prinsarnir af stað og reyndu að finna kónginn og meðalið, sem gat læknað minnisleysið. Meðal þeirra var ungur prins, sem var mjög fátækur, en fríðastur af þeim öllum, og hann elskaði prins- essuna heitt. Ilann hugsaði með sjálfum sér: „Eg á ekki skilið að eignast prinsessuna, en samt sem áður ætla ég að reyna að finna föður hennar — því að hann þarf ekki annað en að sjá dóttur sína, þá mun hann muna allt. Enginn getur gleymt henni." Þegar prinsinn var kominn út fyr- ir borgarhliðin, mætti hann gamalli ölmusukonu, og henni gaf hann síð- ustu peningana sína. Þá sagði kon- an: „Af því að þú ert svona hjartagóð- ur, þá ætla ég að hjálpa .þér. Taktu staf og gaktu alltaf í þá átt, sem hann vísar þér — þá finnur þú það, sem þú leitar að.“ Með þessum orðum rétti hún hon- um litinn staf, og þegar prinsinn fór eftir því, sem konan sagði, kom hann að síðustu að litlu húsi í miðjum skóginum. Þegar hann barði að dyr- um, kom maður út og sagði: „Komdu inn, hver svo sem þú ert — ég veit ekki hver ég er sjálfur eða hvar ég er staddur, en allir gestir eru velkomnir til mín.“ Prinsinn skildi, að maðurinn hlaut að vera horfni kóngurinn, þótt hann líktist einna helzt gömlum kennara með gleraugu á nefinu. En þegar prinsinn stakk upp á því, að hann færi heim með sér og gerðist kóngur á ný, hörfaði gamli maðurinn ótta- sleginn undan og sagði: „Sg þori ekki að hætta mér út í þennan stóra skóg — ég myndi þá villast og aldrei komast hingað aftur. Ég gerði þetta cinu.sinni og flakkaði þá um og hafði ekkért til að bíta og brenna, en að síðustu fann ég þenn- an kofa og hefi haft aðsetur mitt í honum síðan." Þá skildi prinsinn, að hann varð að beita öðrum ráðum, svo að hann þakkaði gamla kónginum fyrir gest- risnina og fór burt. Skógurinn var mjög villugjarn, svo að það liðu sjö 'vikur, þar til hann kom út úr honum, en þá gekk hann upp að höllinni og sagði prinsessunni alla söguna. „Við skulum hraða okkur af stað!" sagði hún, „ef til vill get ég fengið föður minn með mér — annars verð- ur ekkert hægt að gera!" Síðan gengu prinsinn og prinsess- an tvö ein í gegnum skóginn, en í þetta sinn gekk þeim vel að finna kofann. Meg fram einni kofahliðinni gekk gamall maður, með gleraugu á nef- inu, og virtist hann vera í djúpum þönkum. „Pabbi," hrópaði prinsessan og hljóp til mannsins. Hann horfði undrandi á hana um stund, en allt í einu birti yfir svip hans og hann sagði: „En ert þetta þú, elsku barn. hvernig komstu hingað? Hvað á allt. þetta að þýða? Eg hlýt að hafa orðið. fyrir töfrum, þar sem ég var búinn að gleyma öllu!" Það var einmitt það, sem hafði hent veslings kónginn, og stuttu á eftir kom prinsinn með viðbjóðslegari, svartan dverg, sem var vandlega bundinn. „Nú hefi ég fundið dverginn, sem lét kónginn gleyma," sagði hann, „gamla ölmusukonan birtist mér og sagði, að hún væri guðmóðir mín og góð skógardís og ætlaði nú að hjálpa mér. Síðan benti hún mér á, hvar dvergurinn var og hjálpaði mér við að ná honum á mitt vald." „Já, nú get ég munað allt!" sagðí kóngurinn og var bæði glaður og unglegur aftur. „Förum héðan og höldum brúðkaup ykkar, þvi að þú og dóttir mín eigið að giftast, en ég ætla að vera kóngur dálítið lengur!" Dvergnum var kastað í dimmustu dýflissuna, sem til var, en mikil gleði ríkti um allt landið, þegar kóngurinn kom aftur, alheilbrigður og settist að nýju í hásætið. Brúðkaup prinsins og prinsessunn- ar var haldið með miklum fagnaðar- látum og vegsemd, og lifðu þau bæði. vel og lengi.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.