Vikan


Vikan - 12.05.1949, Blaðsíða 2

Vikan - 12.05.1949, Blaðsíða 2
2 VIKAN, nr. 19, 1949 PÓSTURINN * Svar til „Manns að norðan“: Við þessu getum við ekkert ráðlagt ann- að en það, að þér leitið lseknis. Kæra Vika! Ég er búinn að vera kaupandi þinn í mörg ár, og þakka ég þér fyrir allar ánægjustundirnar, sem þú hef- ur veitt mér, og sérstaklega fyrir framhaldssögumar þínar, því þær eru alltaf svo spennandi. Nú langar mig að biðja þig að svara fyrir mig þrem- ur spumingum. 1. Viltu gefa mér upplýsingar um það, hvar maður getur lært tann- smíði, hvað það tekur langan tíma, hvort maður þurfi að hafa einhverja sérstaka menntun og vissan aldur. Pær maður kaup á meðan maður er að læra, og þá hve mikið? Hvað er kaupið, þeg- ar maður er búinn að læra? 2. Hvað á ég að vera þung? Ég er nýlega 16 ára og 161 cm. á hæð. 3. Hvaða litir fara mér bezt? Ég er ljóshærð, frekar hvít í andliti, með dálitlar freknur á nefinu. Vonast eftir svömm sem fljótast. Ein, sem ekkert veit. Svar: „Námstími sé minnst 2 og 3 ár, 2 ár í kátsjúktækni, en 3 ár i gull- og kátsjúktækni. Kaup greið- ist nemendum svo sem hér segir: 1. árið 25% af kaupi nýsveina (kr. 325.00). 2. árið 30% af kaupi ný- sveina. 3. árið 40% af kaupi ný- sveina." (tír samningi milli Tann- smiðafélags Islands og Tannlækna- félags Islands). Nú er kaupi svo hátt- að samkv. samn., að nýsveinar í kát- sjúktækni fá kr. 325.00 á mánuði + verðlagsuppbót, en nýsveinar í gull- og kátsjúktækni fá kr. 416.00 pr. mán. + verðlagsuppbót. — 2. Ca. 59 kg. — 3. Rautt og blátt. Kæra Vika! I>ú, sem uppfyllir allra óskir. Nú langar mig að biðja þig að segja mér hvert ég á að snúa mér til að fá upplýsingar um frænku mína, sem fór til Ameríku um aldamótin og sem ég hef ekkert frétt til. Hvernig er skriftin? „Búðarloka". Svar: Biddu Þjóðræknisfélagið lið- sinnis. Kæra Vika! Gætir þú nú ekki verið svo góð að segja mér, hvort lagið við „Ein yngismeyjan gekk út í skógi", sé einnig við „Þú ert mitt sólskin" ? Vonast eftir svari í næsta blaði. For vitinn. (Árí ðandi). Svar: Nei, það er fráleitt. Kæra Vika! Getur þú gjört svo vel og sagt mér hvað það tekur mörg ár að læra bókband. Einnig, hvort það þurfi að læra iðnteikningu til þess. Þökk fyrir svar. Einn áhugasamur. Svar: 4 ár, iðnteikningar er kraf- izt. Kæra Vika! Viltu gjöra svo vel að segja mér, hvað ég á að vera þung? Ég er 173 cm. og 21 árs. Með fyrirfram þökk. Þvengjalengja. Svar: Ca. 66 kg. Svar til Dalbúa: Við vitum ekki, hvað þetta merkir, enda sýnist okk- ur setningin og orðin þannig, að þau séu heimasmíð. Geturðu ekki sagt okkur, hvar þú náðir í þetta? Svar um aldur Finnbjörns Þor- valdssonar: Fæddur 25. maí 1924 í Hnífsdal, Isaf. Svar til verðandi loftsiglingafræð- ings: Snúðu þér til flugmálastjóra. Þar muntu fá greiðust og áreiðan- legust svör. Svar til Dollýar og búfræðings: Umbeðin kvæði megum við ekki birta. Góða Vika mín! Viltu segja mér hvað kúla, sem notuð <er til kasta í íþróttum, á að vera þung, og hvað kringla, sem notuð er við íþróttir á að vera þung og stór að ummáli? Iþróttavinur. Svar: Kúla: a) fullorðinna 7,257 kg., b) drengja 5,5 kg., c) kvenna 4 kg. Kringla: a) fullorðinna 2 kg., b) drengja 1,5 kg. Þvermál karla- kringlu skal vera 21,9 cm. Um þetta allt eru nánari ákvæði. Listdanssýning F.Í.L.D. (Sjá forsíðu) Ljósmyndastofa Ernu & Eiríks Ingólfs apoteki — Sími 3890 Dansskóli Félags ísl. listdansara hélt sýningu með nemendum sínum dagana 24. og 26. apríl í Austur- bæjarbíó, við góða aðsókn og ágætar undirtektir. Vikan birtir á forsíðu myndir frá sýningunni, og eru þær úr öllum atriðum sýningarinnar. Sérstaka athygli vakti „Brúðubúðin,” en það eru ýmiskonar listdansar í balletformi, sem dansaðir voru af yngri nemendum skólans. Næst var látbragðsleikur, „Þrír litlir kettl- ingar”, þá tékkneskur hópdans, og að lokum balletinn „Les Sylphiedes” eftir Lois H. Chalif. 1 honum döns- uðu eldri nemendur skólans ásamt kennurum. Mun þetta vera fyrsti balletinn, sem sýndur hefur verið hér á landi. Dansskólinn hefur starfað í einn vetur og verið aðallega til húsa i Þjóðleikhúsinu. 1 skólanum var aðal- áherzla lögð á balletkennslu, en auk þess var kennt karakterdansar, lát- bragðslist, step, akrobatix og sam- kvæmisdansar. Skólanum var slitið 1. april að afloknum vorprófum, sem yfirleitt sýndu góðan árangur. Kenn- arar skólans eru: Sigríður Ármann, Sif Þórs og Sigrún Ólafsdóttir aðstoðarkennari. Því ber að fagna, að Félag ísl. listdansara skuli hafa stofnað skóla til kennslu í ballet einmitt nú, þegar opnun Þjóðleikhússins stendur fyrir dyrum, því balletsýningar hljóta að verða einn þáttur í starfsemi þess. Bréfasambönd Birting á nafni, aldri og heimilis- fangi kostar 5 krónur. Áslaug Pétursdóttir (við pilta eða stúlkur 19—26 ára), Naustum, Eyrarsveit, Snæfellsnessýslu. Dídí Ingvars (við pilta eða stúlkur 14—28 ára), Garði, Kelduhverfi, N.-Þingeyjarsýslu. Guðrún Ragna Pálsdóttir (12—-15 ára), Þorbergsstöðum, Dalasýslu. Líndal Bjarnason (við stúlkur 15— 18 ára), Mel við Búðardal, Lax- árdal, Dalasýslu. Jón Guðjónsson (við pilt eða stúlku 13—15 ára), Kirkjubóli, Bjarnar- dal önundarfirði, Vestur-lsafjarð- arsýslu. Magnús Andrésson, Jóhann Guðbrandsson, Einar Leó Guðmundsson, (við stúlkur 17—19 ára, æskilegt að mynd fylgi), allir á Hólmavík. Strandasýslu. Arnhildur Reynis (við pilta eða stúlkur 16—20 ára), Garðarsbraut 19, Húsavík. Helen Hannesdóttir (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), Ketilsbraut 17, Húsavík, S.-Þingeyjarsýslu. Kristín Eyjólfsdóttir (15—17 ára), Jónbjörg Eyjólfsdóttir 17—19 ára), báðar Bjargi, Borgarfirði eystra. Kristgerður Kristinsdóttir (við pilt eða stúlku 15—18 ára), Ásgarðs- vegi 3, Húsavík. Gísli S. Guðmundsson (við stúlkur 16—20 ára, æskilegt að mynd fylgi), Króki, Ásahreppi, Rangár- vallasýslu. Einar Matthíasson (við stúlkur 20 —25 ára, mynd fylgi), Stefán Kristjánsson (við stúlkur 14 —16 ára, mynd fylgi), Arthúr Guðmundsson (við stúlkur 14 —16 ára, mynd fylgi), Flosi Valdimarsson (við stúlkur 14 16 ára, mynd fylgi), allir á Hólma- vík við Steingrímsfjörð, Stranda- sýslu. Guðmunda Matthíasdóttir (við pilt 16—19 ára, æskilegt að mynd fylgi), Minni-Borg, Grímsnesi. Jón Friðbjörnsson (við stúlkur 20— 23 ára), Höfða, Grunnavíkurhreppi, N.-Isafjarðarsýslu. Guðbjörg Á. Björnsdóttir (við pilt eða stúlku 14—15 ára), Hofsósi, Skagafirði. Tímaritið SAMTÍÐIN Flytur snjallar sögur, fróðlegar ritgerðir og bráðsmellnar skop- sögur. 10 hefti árlega fyrir aðeins 20 kr. Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75. ________________________ J Útgefandi VTKAN H.F., Reykjavik. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.