Vikan - 13.10.1949, Page 7
7
VIKAN, nr. 41, 1949
Pósturinn
Framhald af bls. 2.
Kæra Vika!
Viltu vera svo góð, að gefa mér
einhverjar upplýsingar um þessar
kvikmyndaleikkonur. Ginger Rogers,
Marilyn Maxwell, Laraine Day og
Kathryn Grayson.
Með kærri þökk fyrir svarið.
Lísa.
E. S. Hvernig er skriftin?
Svar: Ginger Rogers er f. 16 júlí
1911. Byrjaði að leika og dansa innan
við fermingu. Marilyn Maxwell, f.
3. ágúst 1921, Iowa, ljóshærð, móeyg.
Hóf að syngja dægurlög í útvarps-
stöð, sem bróðir hennar átti, er hún
var 15 ára. Söng með hljómsveitum
og tók siðan að leika. Laraine Day,
f. 13. okt. 1920 í Utah, bláeyg með
skollitað hár. Katliryn Grayson er
f. 9. febr. 1922 í North-Carolina.
Dökkhærð og móeyg, fremur lágvax-
in. Einkum kunn fyrir ágæta söng-
rödd. — Skriftin er ekki sem verst.
Kæra Vika mín!
Viltu vera svo góð að svara fyrir
mig eftirfarandi spurningum.
1. Er nokkur skömm að því þó
maður skrifi strákum og biðji þá um
mynd af sér?
2. Viltu vera svo góð að gefa mér
upplýsingar um örn Clausen?
'3. Geturðu gefið mér upplýsingar
um leikarana Harald Adólfsson og
Karl Guðmundsson ?
Vonast eftir svari í næsta blaði.
I>in Hekla.
Svar: 1. Nei, strákar hafa bara
gaman af því. — 2. Sjá Vikuna nr.
34, þ. á. Þar er forsíðumynd og grein
um örn. Sjá ennfremur „Póstinn í
38. tbl. — 3. Þeir eru báðir ungir og
myndarlegir menn og ókvæntir. Har-
aldur hefur stundað leiknám tvo vet-
ur hjá Lárusi Pálssyni, auk þess
lærði hann andlitsförðun fyrir leikara
í Kaupmannahöfn. Hefur m. a. leik-
ið i útvarp og hjá Bláu stjöraunni í
Reykjavík. Heimilisfang hans er
Silfurtún 2, Garðahreppi. Karl er
Reykvíkingur, lauk stúdentsprófi fyr-
ir nokkrum árum, en hefur síðan
stundað margskonar vinnu. Hann
lærði leiklist hjá Ævari R. Kvaran
og þykir afarsnjall að herma eftir.
Hefur hann komið fram í útvarpi,
hjá Bláu stjörnunni, og í sumar hef-
ur hann ferðast um landið, sem einn
hinna vinsælu ,,Sumargesta“, er víða
skemmtu við góðar undirtektir. Heim-
ilisfang hans er Sólvallagata 26,
Reykjavík.
Kæra Vika!
Mig langar til að biðja þig að gefa
mér dálitlar upplýsingar um okkar
frægu íþróttahetjur, Hauk og Örn
Clausen.
1. Eru þeir tvíburar?
2. Hvenær eru þeir fæddir?
3. Hvernig „lita þeir út“?
4. Hvert er heimilisfang þeirra ?
Berðu þeim bræðrunum beztu
kveðjur mínar, og þakka þér fyrir-
fram hjálpina.
Leiki við þig, lán og gengi,
lifðu bæði vel og lengi — —
Dóttir Borgarfjarðar.
P.S. Ödauðlega spurningin: Hvern-
ig er skriftin?
Svar: Við höfum all oft svarað
þessu eða þvílíku. Þeir eru tvíburar,
f. 8. nóv. 1928, mjög likir ásýndum,
svo að ókunnugir þekkja þá ekki
sundur. örlítill stærðarmunur er á
þeim, þótt hans verði ekki vart
nema við nákvæm athygli. Þeir
munu báðir vera liðlega 180 cm. á
hæð, vel vaxnir, fríðir sýnum og
samsvara sér ágætlega.
Heimilisfang þeirra er Freyjugata
49, Reykjavík. — Skriftin er ekki
falleg.
Mynd til vinstri: Vegurinn til Gilgit i Austur-Turkestan er svo brattur,
að ekkert farartæki hefur komizt hann á enda. — Mynd til hægri (að ofan):
1 Ameríku hafa menn búið til hatt, sem tekur ofan sjálfkrafa. •— Mynd að
neðan til hægri: Heita sumardaga gefa laufblöð álmtrjáa frá sér svo mikið
vatn að fylla myndi 50 tunnur.
i
B
IJ
F
F
A
L
O
B
I
L
L
9
Endursögn: Jóhanna Calamité hafði verið send til liðsbónar gegn Indíánum, en þeir komust á slóð henn-
ar, svo að hún varð að hörfa til Missisippi árbakkans og kemst þar um borð í hjólaskipið, sem er á leið
til Leavenworth. Með skipinu er Buffalo Bill. Jóhanna ber upp erindi sitt við Merrit hershöðfngja, en þeg-
ar hún er á leiðinni til Larrimor vinar síns ein síns liðs, sitja þrír skuggalegir Indíánar fyrir henni og
elta hana.
Stigamennirnir elta En Jóhanna hefur heyrt i Eldsnöggt stígur hún---------------------einn stigamanna lem- — — og hún
Jóhönnu Calamité þeim og snýr sér við. eitt spor og slær, en — ur hana með kylfu — — er bundin
með snæri.
Larrimor: Halló! Indláni: Fljótir! Larrimor hefur séð Larrimor: Gripið þrjótana! Hjálp! Brátt er bærinn allur í
Hvað er um að okkur. Brátt verða allir bæjarbúar á uppnámi, en þorparamir
vera ? hælunum á okkur. eru horfnir.