Vikan - 13.10.1949, Blaðsíða 10
10
VIKAN, nr. 41, 1949
...iiiiiiiiiiiiiii..........iiiiiiiiiir,,
I • HEIMILIÐ • I
Kennið barninu að klæða sig
eftir dr. phil. G. C. Meyers.
Héralíki.
% kg. kjöt, % kg. soðin jarð-
epli, 1 egg, salt, pipar, 75 gr.
smjörlíki, % 1. mjólk, brúnuð
jarðepli.
Sé notað saltkjöt, er það afvatnað
og ekki notað krydd. Kjötið er sax-
að þrisvar sinnum í söxunarvél og
jarðeplin þrisvar sinnum. Hvort
tveggja sett í skál og hrært með
egginu um stund. Sett á borð og
formað líkt og hveitibrauð. Og síð-
an sett I steikaraskúffu, sem er
smurð smjöri og smjörklessur settar
, hér og þar. Steikt í ofni, unz það er
móbrúnt. í>á er mjólkinni, sem er
hituð og blönduð vatni, hellt yfir, og
siðan er allt látið sjóða í ofninum í
%•—1 klst. Á 10 mín. fresti er soðinu
ausið yfir kjötið. Soðið slað og haft í
sósu.
Sósan:
30 gr. smjöriíki, 30 gr. hveití,
mjólkursoðið, sósulitur, sykur, salt,
pipar út í og þynnt síðan með soð-
inu. Látið sjóða í 2 mín. Sósulitur
settur í og krydd eftir smekk. ,,Hér-
inn“ settur í heilu lagi á mitt fatið.
Þar í brúnuð jarðepli og lítil sósa yf-
ir. Sósan er borin með í sósukönnu.
Kókóhrís með mjólkur-
sósu.
Leifar af hrísgrjóangraut (mjólk-
urgraut), úr 1 1. mjólkur, % 1. •
rjómi, 4 matsk. kókó, 4 matsk.
sykur.
Kókóinu og sykrinum er hrært út
í grautinn og seinast rjómanum
þeyttum. Látið í glerskál.
Sósan:
% 1. mjólk, 2 eggjarauður (eða
eitt egg), 1 sléttfull matskeið
sykur, 2 sléttfullar matsk. kart-
öflumjöl, vanille.
Eggin hrærð með sykrinum, mjöl-
inu og dálitlu af mjólkinni. Hitt er
látið sjóða og hrært vandlega út í
eggið, sett yfir eld og látið hitna
yfir suðu. Hrært í á meðan og á með-
an það er að kólna, svo ekki setjist
á það skán.
Borið heitt á borð.
Smábarninu finnst föt vera til
óþæginda, þar eð það verður að vera
kreppt, þegar það er fært í eða klætt
úr þeim. Áður en það er ársgamalt,
kann að vera, að það sýni mótþróa
og kreppi handleggi og fætur og
reyni á þolinmæði móðurinnar. En,
þegar barnið er þriggja eða fjögurra
ára, getur svo farið, að fötin séu því
til ánægju, enda þótt því sé ekki
alltaf þannig farið.
Þegar barnið er ársgamalt, getur
það auðveldlega tekið af sér vettling-
ana, húfuna og farið úr skóm og
sokkum, en það getur orðið tveggja
ára gamalt, áður en það getur farið
..Navyö-blá blýssa og rósrautt pils.
Bækur gegn afborgun
Ég undirritaður óska að mér verði sendar Islendingasögur
(13 bindi), Byskupa sögur, Sturlunga saga, Annálar ásamt
Nafnaskrá (7 bindi), sem samtals kosta kr. 870,00 í skinn-
bandi.
Bækurnar verði sendar í póstkröfu þannig, að ég við mót-
töku bókanna greiði kr. 70,00 að viðbættum öllu póstburðar og
kröfugjaldi og afganginn á næstu 8 mánuðum með kr. 100,00
jöfnum mánaðargreiðslum, sem greiðast eiga fyrir 5. hvers
mánaðar.
Ég er orðin.... 21 árs og er það ljóst, að bækurnar verða ekki
min eign, fyrr en verð þeirra er að fullu greitt.
Það er þó skilyrði af minni hendi, að ég skal hafa rétt til
að fá skipt bókunum, ef gallaðar reynast að einhverju leyti,
enda geri ég kröfu þar um innan eins mánaðar frá móttöku
verksins.
Litur á bandi óskast
Svartur
Brúnn
Rauður
Strikið yfir það,
sem ekki á við.
Nafn ..
Staða ..
Heimili
Islendingasagnaútgáfan Túngötu 7. Pósthólf 73
Útfyllið þetta áskriftarform og sendið það til útgáf-
unnar.
Aldrei hefur íslenzkum bókaunnendum
slík kostakjör sem þessi.
verið boðin
íslendingasagnaútgáfan h.f.
Túngötu 7. Pósthólf 73. Sími 7508. Reykjavík.
úr öllum fötunum. Hyggin móðir bíð-
ur og lætur barnið fara úr eins miklu
og það getur, þegar það virðist hafa
áhuga á þvi. En þetta reynir mjög á
þolinmæðina og fyrir þreytta og
önnum kafna móður, er ekki ávallt
auðvelt að vera þolinmóð. Enn erfið-
ara er fyrir hana að blða og láta
litla barnið smám saman læra að
klæða sig úr fötunum. Þrátt fyrir
það mun hún vinna tímann, sem hún
nú' virðist tapa, síðar. Sé barninu
ekki leyft að hjálpa til, þegar það
er fúst til þess, mun það brátt missa
áhugann.
En ef annað barn bætist í fjöl-
skylduna, kann að vera, að eldra
barnið, jafnvel þótt það sé fjögurra
eða fimm ára að aldri, missi áhug-
ann og krefjist þess, að móðirin
og ávítar barnið. Þetta er eitt af þvi
versta, sem hún getur gert. 1 þess
stað á hún að hvetja það og hjálpa
því, þar eð það finnur svo vel, að
klæði það. Þá verður móðirin oft reið
litla barnið hefur alla athygli móð-
urinnar. Jafnvel þótt barnið sé eitt,
fcann að vera, að það ýmist biðji
móður sína að klæða sig eða neiti
alveg að klæða sig og jafnvel að
hjálpa til við það. Þegar þetta kemur
fyrir, freistast móðurin oft til að
neyða það til að klæða sig, en þá
kemur fram þrjózka I barninu, sem
getur komið því i koll siðar í lífinu.
Eins og allir vita, er erfitt að læra
að þekkja hægri skóinn frá þeim
vinstri. Mörg böm læra þetta ekki
fyrr en þau eru þriggja ára eða eldri.
Þegar barnið er tveggja eða þriggja
ára, fær það áhuga á að reima skó-
reimar sínar, en það getur þurft að
æfa sig í nokkra mánuði, áður en
það getur gert það vel. Fá börn inn-
an sex ára aldurs geta reimað skóna
svo vel fari.
Innan tveggja ára aldurs finnst
barninu gaman að fitla við hnappa og
vill hneppa allt frá. Það er gott, ef
hnapparnir eru mjög stórir og
hnappagötin stór. Þá á barnið auð-
veldara með að hneppa frá sér. Þeir,
sem búa til barnaföt, hafa lagt sig
fram við að búa til föt, sem gera
bömunum auðveldara að klæða sig
og hátta. Mæður, sem sjálfar sauma
fötin á börn sín, ættu að hafa sjálfs-
traust bamsins í huga.
Hentug föt fyrir ung börn em
sterk, gera barninu auðvelt að hreyfa
sig, gera því fært að klæða sig sjálft,
hæfilega hlý, fremur létt og nægilega
stór.
Leiðrétting.
1 Vikunni nr. 39 var grein á þessari
síðu sem nefndist: Kemur barnið,
þegar þið kallið. Höfundur hennar
er dr. G. C. Myers, en ekki Stein-
grímur Arason. Er hann beðinn vel-
, ‘ Virðingar á mistökunum.