Vikan - 07.02.1991, Blaðsíða 15
JA-SVONA
ÆTTIÉGAÐ
GERAÞETTA
HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR, INGIBJÖRG GRÉTA OG ÞÓREY SIGÞÓRSDÓHIR
ÚTSKRIFAST BRÁÐUM SEM LEIKKONUR
Þið ættuð kannski að leggja þessi
nöfn á minnið. Þær hafa sýnt á sér
ýmsar hliðar ( Nemendaleikhúsinu
í vetur og útskrifast í vor eftir fjögrra
ára strangt nám við Leiklistarskóla
íslands. Aðeins átta nemendur komust að við
skólann þegar þær sóttu um. Fimmtíu og fimm
þurftu frá að hverfa. Tvær þeirra, Halldóra og
Ingibjörg, eru Reykvíkingar en Þórey er ættuð
frá Patreksfirði. Þetta eru þrjár af leikkonum
framtíðarinnar á íslandi. Hver voru fyrstu kynni
þeirra af leiklist?
Ingibjörg: Ég tók þátt í nemendamóti í Verzl-
unarskólanum og lék þar blindfulla álfkonu. Ég
hafði aldrei leikið áður.
Þórey: Þó ég sé ekki
morðingi þá þekki ég
þessa tilfinningu ...
UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Halldóra: Þetta er
spurning um úthald
allan daginn, allt
árið, alla ævina.
Halldóra: Ja, ég man ekki eftir mér öðruvísi
en að leiklist hafi verið hluti af mér. Ég var alltaf
að leika þegar ég var lítil og - kannski er mað-
ur alltaf að leika í lífinu.
Þórey: Ætli ég hverfi ekki til einhverrar kofa-
menningar vestur á Patró. Þar tróð ég fyrst upp
fyrir einhverjum áhorfendum og síðan hefur
þetta alltaf verið hluti af mér.
- Hvaða persónueiginleika þarf til að
geta orðið leikarí?
Þórey: Það þarf óbilandi áhuga á leiklistinni
og svo þurfa allir leikarar að hafa ákveðið inn-
sæi og hæfileika til að geta miðlað.
Halldóra: Maður þarf líka að vera opinn og
sveigjanlegur og troða ekki skoðunum sínum
upp á persónuna sem maður er að leika.
Ingibjörg: Vera opinn og hafa þetta mann-
lega innsæi. Maður verður að geta áttað sig á
fólki og stúderað það.
Halldóra: Já, maður verður að vera
mannvinur til að geta verið leikari.
- Út á hvað gengur svo leiklistarnámið?
Ingibjörg: Raddþjálfun og mikla líkamsögun,
textameðferð og að sameina þetta allt svo að
maður geti skapað lifandi manneskju sem læt-
ur streyma frá sér.
Halldóra: Námið byrjar eiginlega á því að
gera nemendur meðvitaða um sjálfa sig, kosti
Frh. á næstu opnu
Ingibjörg: Mér finnst
spennandi að fást við
persónur sem eru
ólíkar mér.
3.TBL1991 VIKAN 15
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON