Vikan - 07.02.1991, Blaðsíða 25
ÓLGANDI LOGNIÐ
Á UNDAN LÆVÍSUM
STORMINUM
REGNBOGINN FRUMSÝNIR MYNDINA ÚLFADANSA
Félagarnir Kevin Costner,
Michael Blake og Jim
Wilson hittust fyrir tíu
árum þegar þeir unnu saman
að ódýrri bíómynd sem hlaut
nafnið Stacy’s Knights. Þar lék
Kevin fyrsta aðalhlutverkið sitt,
Jim stýrði fyrstu myndinni sinni
og Michael skrifaði fyrsta
handritið sitt. Nú eru þeir allir
orðnir virtir menn, hver á sínu
sviði. Jim gerðist kvikmynda-
framleiðandi og hefur framleitt
myndir eins og Laughing
Horse, The Movie Maker og
Revenge. Langafi, afi og
föðurbróðir Michaels Blake
voru rithöfundar. Sjálfur hefur
hann skrifað nokkrar bækur og
kvikmyndahandrit. Honum
finnst hann hafa fæðst hundr-
að árum of seint, enda gerast
flestar sögur hans um og eftir
miðja síðustu öld. Hann hefur
alltaf haft áhuga á frumbyggj-
um Ameríku og vinir hans
báðu hann að skrifa hugmynd-
ir, sem hann hafði fengið að
kvikmynd, í bók. Bókin kom út
og náði að vísu engri metsölu,
en þótti samt svo góð að hún
var notuð sem uppistaða í
myndina Úlfadansa. Kevin
hafði leikið í tólf myndum,
meðal annars The Untouch-
ables, No Way Out, Fandango
og Silverado, þegar hann tók
að sér að leikstýra, aðstoða
framleiðanda og leika aðal-
hlutverkið í Úlfadönsum. Á-
stæðan var fyrst og fremst
samúð með indíánum og að-
dáun hans á bókinni Úlfadöns-
um sem Michael Blake samdi.
Myndin gerist árið 1860 og
segir frá heiðarlegum liðþjálfa,
John Dunbar að nafni. Hann
vinnur sér álit þegar hann fer
sínar eigin leiöir á nokkuð
óvenjulegan hátt í þrælastríð-
inu og hann biður um leyfi til
að fá að þjóna ættjörðinni á lítt
könnuðum slóðum. Örlögin
haga því þó þannig að hlut-
verk hans sem manneskju
verður allt annað en hann
hafði órað fyrir í upphafi.
Þetta er stórbrotin mynd, í
senn raunsæ og óraunsæ og
hefur það fyrst og fremst sér til
ágætis að vera óútreiknanleg.
Hún er þriggja klukkustunda
löng og viðburðarík eftir því j0hn Dunbar þurfti að bregða sérbæjarleia
enda hefur hún vakið mikla at- 0g það ótti eftir að hafa ófyrirsjáanlegar
hygli erlendis, sérstaklega í afleiðingar.
Bandaríkjunum þar sem hún
hlýtur að eiga mikið erindi við
fólk. Til að fá sem raunveru-
legastan blæ á hana var leitað
til leikara sem ekki voru
bundnir hefðum Hollywood,
Los Angeles eða New York.
Sioux-ind íánahöfðingjann
„Sparkandi fugl“ leikur Gra-
ham Greene. Hann er reyndar
ekkert skyldur rithöfundinum
fræga heldur er hann sjálfur
indíáni af ættbálki oneida. í
myndinni þarf hann að tala
indíánamálið lakota eins og
raunar allir indíánarnir, hvort
sem þeim er sú tunga töm eða
ekki, en það gefur myndinni
óneitanlega sérkennilegan
blæ. Mary MacDonnel leikur
hvíta konu sem alist hefur upp
með indíánum og heitir
„Stendur með hnefa" á máli
þeirra. Hún hefur áður leikið í
myndunum Garbo Talks og á
móti Patric Swayze i Tiger
Warsaw.
Það væri freistandi að segja
frá söguþræði myndarinnar en
við látum kvikmyndahúsagest-
um eftir að drekka hann í sig
og ræða hann sín á milli að
sýningu lokinni.
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON