Vikan - 07.02.1991, Side 17
Ingibjörg: Og þegar maöur er búinn á sefingu
fer maöur ekki bara heim að elda. Maður er
alltaf með hugann við hlutverkið sitt og fer
aldrei frá því á æfingatímanum.
- Fylgja þessu martraðir?
Ingibjörg: Mig dreymir oft það sem ég er að
vinna að.
Þórey: Ég þekki eina martröð. Hún er þannig
að ég stend og man ekkert hvað ég ætla að
gera næst og ég get ekki einu sinni talað.
Halldóra: Ég held ég fái martröð fyrir hvert
einasta verkefni, einhvern tímann á ferlinu. Þá
fæ ég þá martröð að ég á að fara upp á svið og
kann ekki textann. Allir horfa á mig og ekkert
kemur. Það er hræðilegt.
- Hvernig finnst ykkur að skipta kannski
yfir úr nútíma manneskju yfir í aðra sem á
að hafa verið uppi fyrir svona tvö hundruð
árum?
Ingibjörg: Manneskjan breytist svo lítið.
Halldóra: Það er ekki eins erfitt og það lítur
kannski út fyrir að vera því tilfinningarnar fylgja
okkur frá kynslóð til kynslóðar. Og það eru þær
sem við erum að vinna með.
Þórey: Við fyrstu kynni virka persónurnar
ólíkar manni en þegar betur er skoðað kemur
í Ijós að þetta eru alltaf sömu tilfinningarnar,
sömu veggirnir sem fólk rekst á og sömu erfið-
leikarnir; það er ástin og hatur. Þessir eiginleik-
ar sem hafa alltaf fylgt manninum - á tímum
Forngrikkjanna, Shakespeares og okkar.
Ingibjörg: Þegar við vorum með Dauða
Dantons lásum við mannkynssögubækur til að
kynna okkur aðstæður fólksins og þjóðfélags-
gerðina. Þá átti maður betra með að skilja
hvernig fólk tók því þegar einhver sagði eitt-
hvað eða gerði á grundvelli sem hentaði ekki
þjóðfélagsaðstæðunum. Maður verður að vita
hvað er í gangi á hverjum tíma. Það þarf að
hugsa um búningana, hreyfingamunstrið og
hvernig maður kemur persónunum til skila.
Hvernig hegðun og búningar hjálpuðu fólki eða
hömluðu því vegna samfélagsgerðarinnar.
- Þið komið þessu þá til skila með ákveðn-
um smáatriðum?
Þórey: Fólk tekur kannski ekki eftir smáatrið-
unum en þau hjálpa okkur að koma þessu
áleiðis.
Ingibjörg: Við tókum einu sinni rússneskt
aldamótaverk og þá vorum við settar í maga-
belti. Þá fékk maður þessa tilfinningu að vera
bein i baki, geta ekki beygt sig og við minnsta
sjokk gat auðvitað liðið yfir manneskjuna af því
að hún náði ekki að anda niður í maga.
- Þarf ekki töluverða sjálfsþekkingu til að
geta sett sig í spor annarrar persónu? Hvernig
nálgist þið til dæmis manneskju sem er ólík
ykkur og ykkur er jafnvel illa við í raunveru-
leikanum?
Ingibjörg: Það er mjög gaman. Mér finnst
spennandi að fást við persónur sem eru ólíkar
mér. í leikritinu Leiksoppar leik ég eina sem er
köld, fráhrindandi og feimin en samt er hún
ekki öll þar sem hún er séð. Hún gerir svona
ýmislegt sem mér myndi aldrei detta í hug að
gera. Mér fannst þetta rosalega spennandi.
Halldóra: Auðvitað þarf sjálfsþekkingu til að
geta leikið. Mikill hluti námsins fer einmitt í að
læra að þekkja sína eigin rödd, sinn líkama og
þar fram eftir götunum því það er engin mann-
eskja svo einhliða að hún sé annaðhvort bara
vond eða góð. Maður reynir að dýpka persón-
una einmitt með andstæðunum sem í henni
eru. Maður leikur aldrei manneskju sem manni
er illa við. Það er ekki hægt.
Ingibjörg Gréta
ásamt Þorsteini
Guðmundssyni í
Dauða Dantons.
Þórey: Ég held að ég sé ekki geðklofi en
stundum líður mér þannig. Maður er svo fullur
af andstæðum. Þó ég sé ekki morðingi þá
þekki ég þessa tilfinningu að langa til að myrða
einhvern eitt andartak... en ég geri það ekki.
Ef maður gefur sér þær aðstæður að maður
væri glæpamaður og færi alla leið þá þekkir
maður tilfinninguna og skilur af hverju persón-
an gerir það sem hún gerir.
Halldóra: Persónurnar, sem maður leikur,
eiga alltaf eitthvað í tilfinningalífinu sem maður
á sjálfur og kannast við.
- Ganga þessar persónur þá ekki aftur í
ykkur og ásækja ykkur þegar þið eruð farn-
ar að leika þær? «
Þórey: Þær eiga það til að sitja í manni. Ég
fann fyrir því í Dauða Dantons þar sem ég lék
mjög erfitt atriði sem er alveg undir lok leiksins.
Framan af leið mér alltaf rosalega illa af því að
<>mér fannst ég ekki vera búin að ganga frá mín-
um málum, sem þessi persóna. Svo uppgötv-
aði ég að hún fórnar lífi sínu sátt við sjálfa sig.
Dauðinn var hennar lausn. Eftir það leið mér
sjálfri miklu betur því að þá var ég alltaf búin
að klára hana á sviðinu og þurfti ekki að taka
hana með mér heim. Frh. á næstu opnu
3.TBL.1991 VIKAN 17