Vikan - 25.06.1992, Side 2
BORGARFULLTRÚINN
0 ANNA K. JÓNSDÓTTIR
Hún er glæsileg fjögurra barna móöir,
lyfjafræðingur að mennt, situr í borgar-
stjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn og fjölda
nefnda og ráða. Lífsglöð og kraftmikil
kona sem hefur skapað sér eigin stíl.
_ GÚSTIOG
1 U GUNS & ROSES
Ágúst F. Jakobsson heitir ungur Is-
lendingur sem býr I Bandaríkjunum.
Þar er starfi hans sá að annast allar
kvikmyndatökur fyrir hina frægu hljóm-
sveit Guns & Roses og ferðast hann
með henni um þveran og endilangan
hnöttinn þegar því er að skipta.
n NÝIÞJÓÐMINJA-
I 0 VÖRÐURINN
í fróðlegu viötali ræðir Guðmundur
Magnússon um feril sinn í stjórnmál-
um sem I atvinnulífinu. Á dögunum
var hann ráðinn þjóðminjavörður til
tveggja ára og voru ekki allir á eitt sátt-
ir um þá stöðuveitingu. Hann er meðal
annars kunnur fyrir greinaskrif um
menntamál - og hafa margir talið þau
öfgafull. Hver er maðurinn að baki
þeim?
20 PÍANÓSMIÐURINN
Jóhann Frímann Álfþórsson axlaði
skinn sín og hélt til Þýskalands til að
' læra píanóstillingar hjá ekki ómerkara
fyrirtæki en sjálfum Schimmel, þar
sem heimsins bestu flyglar eru smíð-
aðir. Hann hefur nú lokið námi og stillir
píanó á daginn en spilar létta tónlíst
fyrir kráargesti á kvöldin og um helgar.
32 FYRIRSÆTURÓSKAST!
„The Fashion Bureau" er öflugt um-
boðsfyrirtæki I tískuheiminum I
London. Framkvæmdastjóri þess er
Les Robertson, ein þekktasta karlfyrir-
sæta I Evrópu. Hann kemur hingað i
sumar ásamt starfsfólki sínu, heldur
námskeið og leitar að fyrirsætum I
Elite Premier-keppnina í London.
_ . SÆMUNDUR Á
24 BORGINNI
Sæmundur Norðfjörð býr uppi í risinu
á Hótel Borg - hugsandi maður sem
meðal annars hefur lagt stund á heim-
speki. Hann brá sér til Króatíu í vetur
og þar kynntist hann hörmungum
stríðsins og safnaði myndefni ásamt
Júlíusi Kemp. Þeir vinna nú að kvik-
mynd um ferðina.
_n GEIRMUNDUR
2Ö VALTÝSSON
Hann stjórnar einni vinsælustu dans-
hljómsveit landsins og hún er bókuð
nær ár fram I timann. Hann er lands-
kunnur fyrir lagasmíðar sínar og
„skagfirsku sveifluna" sem kemur öll-
um í gott skap. Hann er líka önnum
kafinn fjármálastjóri stórs fyrirtækis -
og bóndi í frístundum.
36 ÍSLENSK ÆTTFRÆÐI
Hér er fjallað um nokkur lögmál ætt-
fræðinnar og farið i skemmtilegan leik
með lesendum. Ættfræði er meira
spennandi en margan grunar.
on RÆKTAÐU GARÐ-
OO INNÞINN
Páll Einarsson er guðfræðingur að
mennt og starfar sem meðferðarfulltrúi
á barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans. I tómstundum ræktar hann
garðinn sinn, sem hann kallar gjarnan
villta, tryllta Villa.
42 SÁLARKIMINN
„Kynlif okkar er nokkuð gott, að visu
mætti það vera nánara. Eg er nokkuö
nákvæm með hreinlæti og snyrti-
mennsku en honum er alveg sama þó
hann sé ekki alltaf nýkominn úr
sturtu ... “ Sigtryggur Jónsson sál-
fræðingur svarar bréfum lesenda og
gefur þeim góð ráð.
MEÐ FLUGLEIÐUM
í EURO-DISNEY
í PARÍSARBORG
Dregið var í lesendagetraun Vik-
unnar, Flugleiða og Euro-Disney
að kvöldi 16. júní síðastliðinn.
Kom þá uþþ nafn Láru Huldar
Grétarsdóttur Kaplaskjólsvegi 29
í Reykjavík.
Lára Huld getur því farið að
huga aö ferðatöskunum því verð-
launin eru ferð fyrir fjögurra
manna fjölskyldu til Parísar í
sumar þar sem verðlaunahafinn
og hans fólk getur m.a. skemmt
sér konunglega í hinum nýja
skemmtigarði Disney.
Geysilega góð þátttaka var í
getrauninni og þakka aðstand-
endur lesendum fyrir undirtektimar.
44 ANDAGLAS
Jóna Rúna Kvaran svarar tveimur
strákum sem fást við andaglas og eru
í vanda.
_n KANNTUAÐ
OU TAKA MYNDIR?
Hér er þráðurinn tekinn upp að nýju frá
þvi i siðasta blaði og lesendur fræddir
um margt það sem máli skiptir ætli þeir
að taka góðar Ijómyndir. Að þessu
sinni er hugað að vali á myndavél.
r . GLÆSIFÖT ÚR
54 IÐNSKÓLANUM
Nemendur I fataiðndeild settu upp
tískusýningu fyrir Vikuna og kynna hér
glæsilegar flíkur sem þeir hafa bæði
hannað og saumað I tengslum við
nám sitt.
64 KVIKMYNDIR
Þeir sem vilja fylgjast með því nýjasta
á hvíta tjaldinu fletta aldrei yfir þennan
þátt.
Á ÍSLENDINGA-
00 SLÓÐUM
Rætt við unga konu af íslensku bergi
brotna. Hún vinnur að því að varðveita
íslenska menningu á Islendingaslóð-
um I Kanada.
2 VIKAN 13. TBL. 1992