Vikan - 25.06.1992, Qupperneq 8
Fljótlega eftir þær kosningar tek ég viö stjórn
dagvistar en um þetta leyti var Dagvist barna
gerö aö sjálfstæðum málaflokki og þar hef ég
verið formaður síöan."
STÖRF SEM GEFA LÍFINU GILDI
í hverju felst starf borgarfulltrúa?
„Okkar höfuðhlutverk er fyrst og fremst aö
gæta þess aö peningum skattborgaranna sé
sem réttast varið. Einnig verðum viö aö gæta
réttarstööu hins almenna borgara og veita
honum ákveöna þjónustu. Allt er þetta mjög
gefandi.
Borgarstjórnarflokkurinn er tuttugu manna
hópur sem hittist vikulega en þess utan er ég í
sex nefndum, sem er eiginlega óvenju mikiö,
þannig að mikill tími fer í fundi og stundum í
undirbúningsfundi. Sömuleiöis fer mikill tími í
aö afla sér upplýsinga til þess aö geta myndaö
sér skoöun sem er manni samboöin. Allt er
þetta þó fræöandi og skemmtilegt og maöur
sér árangur verka sinna. Mitt starf er þó sjálf-
boðavinna að miklu leyti. Ég læröi fljótt hjá
Davíð aö maöur er ekki kominn í þetta starf til
þess aö njóta fyrirgreiðslu heldur fremur aö
gjalda þess, ef eitthvað er. Þegar á það er litið
má kannski kalla mín störf hugsjón, svo langt
sem þaö nær, því þau eru vissulega ekki
launalaus að því leyti aö þau gefa lífinu gildi."
Hefur hún þurft aö gjalda þess í starfi aö
vera kona?
„Nei, ég hef eiginlega frekar notfært mér
þaö, haldið mig i bakgrunni í skjóli þess aö
vera kvenmaður. Þaö er okkur kvenfólkinu
kannski eðlilegt á margan hátt. Ég tel mig hafa
mín áhrif þó ég slái ekki um mig og sé meö
læti. Ég hef heldur aldrei fallið fyrir múgsefjun
í sambandi viö kvennabaráttu. Ég veit þó aö
kvenfólk þarf oft aö gjalda kynferöis síns og ég
verð á einhvern hátt aö taka þátt í því en ég vel
þá leiðina aö sýna frekar fram á aö hægt sé aö
gera ákveöna hluti. Mitt starf er því mitt
framlag. Þó finnst mér ekki síður mikilvægt aö
konur fái tækifæri til aö vera heima hjá börnun-
um sínum og þaö hefur oft flokkast undir viss
forréttindi hjá fólki á mínum aldri."
VERÐUM AÐ HALDA ÖLLUM
MÖGULEIKUM OPNUM
Er fjögurra barna móöir sátt viö núverandi
menntastefnu?
„Það er sorglegt ef keyra þarf menntunar-
stigiö niður þvi þaö hefur veriö mjög hátt hjá
okkur. Síöasta þróun er svolítið uggvekjandi
en ég er sannfærö um að ýmislegt mátti endur-
nýja í menntamálum. Hvort lánasjóðsmálin eru
á réttri braut veit ég þó ekki en engu aö síður
þurfti að stokka þaö dæmi upp og fá betri stýr-
ingu. Sumar aðgerðanna áttu fullan rétt á sér
og þær þýöa ekki endilega minni menntun fyrir
börnin heldur geta þær þýtt aö tíminn nýtist
betur. Þetta gæti líka leitt til þess aö menntun
veröi I betra samhengi viö atvínnulífiö; að við
séum ekki aö mennta fólk sem fær síðan ekki
vinnu við sitt hæfi.
Annars er ég sannfærö um aö hægt væri að
tryggja fólki skilyrði sem veita öllum möguleika
á menntun en þaö veröur einmitt aö opna ýms-
ar leiðir, eins og einkaskóla, til aö fyrirbyggja
stöönun í opinbera geiranum. Þá er ekki ein-