Vikan - 25.06.1992, Page 14
ISLENSKT SU
Uppáhalds Ijósmyndin þín úr sumarfríinu gæti fært þér liðlega
hundrað þúsund króna verðlaun. Kynntu þér keppnisreglur
Ijósmyndasamkeppni Vikunnar og FUJI hér í opnunni.
Myndin þín getur til dæmis verið frá útilegu, ferð um þjóð-
veginn, grillveislu, af landslagi jafnt sem fólki á sumardegi,
slökun í garðinum eða háskalegri fjallgöngu svo dæmi séu
tekin. Möguleikarnir á að ná skemmtilegri sumarmynd eru
óendanlega margir. Þú þarft bara að vera með augun opin
- og filmu í vélinni.
Skilafrestur er til 7. september næstkomandi og skulu
myndir sendar til keppninnar með utanáskriftinni:
VIKAN Fuji, Ijósmyndasamkeppni, Ármúla 22,108 Reykjavík.
(Sjá keppnisreglur um frágang sendingarinnar.)
Taktu líka eftir því að horn úr þessari síðu er ávísun á
24 mynda litfilmu frá FUJI og einnig er sagt frá því
hvernig þú getur fengið ókeypis stækkanir á völdum
myndum sem þú hefur tekið.
• Þátttökurétt eiga allir áhugaljósmyndarar með íslenskan ríkisborgararétt.
• Aðeins koma til álita myndir sem teknar eru á íslandi.
• Myndum má skila inn hvort heldur er á pappír eða litskyggnum.
• Allar myndir skulu merktar með dulnefni og skal fylgja umslag, merkt dulnefninu, sem inniheldur nafn
Ijósmyndarans, síma og heimilisfang.
• Vikan áskilur sér rétt til að birta eins mörg sýnishorn af aðsendum myndum og þurfa þykir.
• Myndirnar þurfa ekki að vera frá þessu sumri. Líttu í myndasafnið, aðgættu hvort þar leynist ekki einmitt
verðlaunamyndin!
Framköllunarþjónustan, Borgarnesi
Filman Hamraborg 1, Kópavogi
Ljósmyndabúðin Myndin hf. Ingólfsstræti 6, Reykjavík
Úlfarsfell Hagamel, Reykjavík
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík
Framköllun Mosfellsbæjar, Þverholti 19
Ljósmyndastofa Suðurlands, Selfossi
Foto, Vestmannaeyjum
Myndsmiðjan Dynskógum 4, Egilsstöðum
Ljósmyndstofa Stefáns Pedersen, Sauðárkróki
Nýja bíó (Bíógrillið), Siglufirði
Prentsmiðja Hornafjarðar, Hornafirði