Vikan


Vikan - 25.06.1992, Side 32

Vikan - 25.06.1992, Side 32
Starfsfólk tískufyrirtækis- ins Fashion Bureau í London kemur til Is- lands á næstunni og mun halda námskeið fyrir fyrirsætur þann 11. júlí. Þar gefst bæði körlum og konum, sem langar til að spreyta sig á þessu sviði erlendis, kostur á að kynnast lítillega þessum heimi„innan frá. Námskeiðið hefst klukkan níu að morgni og veröur haldið á Holiday Inn hótelinu í Reykjavík. Stjórnandi fyrirfækisins er meðal vinsælustu karlfyrir- sæta í Evrópu, Les Robert- son, og mun hann sjálfur leiða námskeiðið ásamt þekktum Ijósmyndurum, stílistum, förð- unarmeisturum og starfs- mönnum umboðsskrifstofa. Á síðustu fimm árum hefur Les Robertson meðal annars unnið fyrir fræg nöfn úr tísku- heiminum, á borð við Vogue, GQ, Christian Dior, Valentino, THE FASHION BUREAU Námskeið á vegum The Fashion Bureau sem Linda Péturs vinnur fyrir Next og fleiri. Hann hefur einn- ig starfað fyrir leiðandi skrif- stofur í bransanum, bæði í London og París, eins og Elite, Premier, Storm og Prof- ile. Vikan átti þess kost að ræöa við hann um námskeiðið og ástæðuna fyrir því að hann væri á leiðinni til íslands. Frh. á næstu opnu 32 VIKAN 13.TBL.1992

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.