Vikan - 25.06.1992, Page 44
JÖNA RÚNA KVARAN MIÐILL SVARAR BREFIFRA LESANDA
SVAR TIL TVEGGJA
UNGLINGSSTRÁKA í VANDA
NDAGLAS
HÆTTULEGT KUKL
Kæra Jóna Rúna!
Við erum hérna tveir vinir sem höfum mikinn
áhuga á öllu sem tenglst dularfullum fyrirbær-
um. Ástæða þess að við skrifum þér er að við
höfum heyrt að þú sért dulræn og sjáandi líka.
Við höfum verið á heimavistarskóla í tvö ár og
líkar það bara vel. Við erum báðir úr sveit og
viljum helst ekki vera á mölinni.
í skólanum er mikið talað um líf og dauða.
Flestir hafa áhuga á dulrænum málum og oft
erum við strákarnir að gera alls konar tilraunir
með hugsanaflutning og annað álíka. Aðalást-
æðan fyrir því að við skrifum þér er að í vetur
tókum við okkur saman nokkur og fórum að
fara saman í andaglas. Okkur fannst það til að
byrja með mjög skemmtilegt. Allt gekk vel og
við náðum sambandi, að við höldum, við ást-
vini okkar sumra sem eru löngu farnir.
Svo gerðist það smátt og smátt að hinir
ýmsu andar fóru að gera vart við sig með mis-
miklum árangri. Loks fór að koma í glasið andi
sem er mjög neikvæður og hrottalega grófur.
Okkur stóð ekki á sama en samt héldum við
uppteknum hætti.
Nú er svo komið að við, ásamt ýmsum öðr-
um hér í skólanum, erum dauðhræddir vegna
þess að þegar við erum að þessum leik magn-
ast upp einhvers konar óhugur í okkur og á eft-
ir liggur við að við getum ekki gengið einir um.
Við erum orðnir það myrkfælnir að það liggur
við að við getum ekki sofið einir í rúmi. Það er
líka eins og þessi skemmtun, ef skemmtun
skyldi kalla, kalli á okkur. Við erum einhvern
veginn eins og helteknir af þessu. Við finnum
líka til mikils eirðarleysis á daginn og hugsum
nánast ekki um neitt nema þetta.
Hvað eigum við að gera, Jóna Rúna? Við
erum skíthræddir og höldum eiginlega að við
séum búnir að koma einhverju af stað sem er
ekki hægt að losna við. Eru til illir andar? Er
hægt að verða andsetinn? Er hættulegt að fara
í andaglas? Hverjir koma eiginlega í svona
andaglas? Heldurðu að draugar séu til? Get-
um við orðið geðveikir af þessu öllu saman?
Kæra Jóna Rúna, viltu vera svo góð að svara
okkur sem fyrst ef það er hægt.
Tveir unglingsstrákar í vanda.
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu
og látið fylgja fullt nafn og kennitölu,
ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi
Jónu Rúnu og rithandarlestri og því miður
er alls ekki hægt að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104
Reykjavík.^^^
Kæru félagar!
Þaö var virkilega ánægjulegt aö lesa bréfiö frá
ykkur, þó að ég veröi aö viðurkenna að á köflum
risu á mér hárin við að lesa lýsingar ykkar á þeim
óhugnaði sem þið hafið upplifað í sambandi við
andaglasið. Satt best að segja taldi ég ekki ráðlegt
vegna annarra og hugsanlega viðkvæmra lesenda
að láta kaflann sem lýsir grófleika þeirrar veru sem
komið hefur í glas hjá ykkur koma fram. Vonandi
virðið þið þá ákvörðun mína og skiljið að það hentar
ekki öllum að heyra allar staðreyndir málsins, þó
þeir geti auðveldlega getið sér til um þær.
Vissulega er ég með meðfæddar dulargáfur og
meðal annars sjáandi eins og þið kallið mig, auk
þess að vera búin miðilsgáfum sem ég hef í róleg-
heitum þjálfað nokkuð stööugt á þriðja ára tug. Af
því að ég er dulræn og bý yfir þessari miklu og
löngu reynslu á sviðum sálrænna fyrirbæra get ég
vonandi uppfrætt ykkur fóstbræður um eitt og ann-
að sem reynst getur ykkur gagnlegt eins og ykkar
málum er háttað. Áfram nota ég jafnframt innsæi
mitt til að svara ykkur og öðrum. Innsæið á rætur
sínar í meðfæddum dulargáfum mínum, ásamt því
aö ég notast líka við reynsluþekkingu og mögulegt
hyggjuvit mitt.
NÝJU FÖTIN KEISARANS
Vissulega má segja að í seinni tíð hafi verið mikil
andleg uppsveifla í þjóðarsálinni. Vart hafa menn
þótt menn með mönnum ef þeir hafa ekki haft ein-
hver tengsl eða óbein afskipti af einhverjum þeim
leyndardómum sem fella má undir og upp að vissu
marki telja skylda því yfirskilvitlega i tilverunni, þó
vart verði það beinlínis fullyrt eða sannað svo auð-
veldlega, þó gott væri. Hversu mikið af nýju fötum
keisarans er sem sagt í gangi andlega er kannski
erfitt að segja til um. Þó er Ijóst að keisarinn á í um-
ferð nokkurn slatta af ósýnilegum fötum sem mis-
mikið er dáðst að. Vera má nefnilega að innan um
og saman við föt keisarans sé og hafi einungis verið
á ferðinni áhugi sem komið hefur besta fólki á ein-
hvers konar andlegt fylliri sem andlega séð verður
tæpast fellt undir neitt sérstaklega göfugt.
SIÐFRÆÐI KRISTS OG KENNINGAR
HANS
Hvað sem öllum fyllirium líður og fataskáp keisar-
ans jafnframt er sem betur fer margt mjög gott í
gangi andlega, þrátt fyrir allt og allt. Það er til dæmis
mjög ánægjuiegt til þess að vita ef fólk eykur af ein-
lægni og heiðarleik við andlega viðleitni sína i dags-
ins önn, styrkir jafnvel eigið manngildi og eflir með
sér virðingu og stöðuga trú á það góða í mannssál-
inni.
Eins er mjög jákvætt ef fólk snýr huga sínum til
Jesú Krists og kenninga hans í leit að því guðlega
í sjálfum sér og öðrum. Yfir okkur vakir nefnilega
góður Guð og hans vilji verður að hafa áhrif á allt líf
okkar og andlega viðleitni. Annað er með öllu óvið-
unandi fyrir þann sem vill lifa friðsömu og kærleiks-
hvetjandi kristnu lífi. Sú siðfræði sem okkur stendur
opin i kenningum frelsarans er það anaiega vega-
nesti sem ætti að nægja okkur til að skerpa löngun
okkar til að lifa grandvöru og ylríku lífi. Eins ætti öll
andleg viðleitni að styrkja tiltrú okkar á bræðralag
og jafnt hlutskipti allra.
KUKL OG VANÞRÓAÐAR VERUR
Unglingar eru ekkert öðruvísi en fullorðnir að því
leyti að innra með þeim eins og fullorðnum blundar
mikill áhugi á alls kyns leyndardómum og öðru sem
fella má undir yfirskilvitleg fyrirbæri. Það hefur því
miður verið algengt meðal ungra að fara í það sem
kallað er andaglas. Miðað við það sem ég hef heyrt
um slíkt fikt er óhætt að fullyrða að enginn ætti að
láta hafa sig út í kukl sem þetta.
Mýmörg dæmi eru um að fólk hafi þurft hjálp geð-
læknis eftir að hafa veriö að leika sér í andaglasi
vegna þess að geðheilsa viðkomandi bauð ekki upp
á þannig fikt. Við verðum að gera okkur fulla grein
fyrir því að hörmulegar og næstum óleysanlegar af-
leiðingar geta birst innra með þeim sem fer að
stunda það kukl sem andaglas alltaf er. Dulspeking-
ar hafa löngum sagt að allra vanþróuðustu verur
hinum megin frá komi unnvörpum í andaglasið þeg-
ar það er sviðsett með tilheyrandi tilþrifum. Á öllum
sérsviðum þarf ákveðna þekkingu og það a ekkert
síður við þegar verið er að leika sér með það sem
virkilega er ókunnugt fólki. Stundum er slíkt kallað
borðdans og fellur náttúrlega strangt til tekið undir
það yfirskilvitlega.
PRESTAR ANDLEGIR FRÆÐARAR
Þar sem þið strákarnir eruð í miklum vanda vegna
andlegs fikts er vissulega mikils virði fyrir ykkur að
vita af því að í samfélaginu eru ríkjandi kristileg við-
horf og við eigum bæði ágæta kennimenn þar sem
prestar landsins eru og góðan hug vísan okkur til
handa innan (slensku þjóðkirkjunnar. Þið ættuð því
sem fyrst að fá umsögn prests um það sem þið eruð
að takast á við og láta af andaglasinu hið snarasta
af alvarlega gefnu tilefni vandræða sem þegar hafa
skapast vegna þessa óvarkára andlega kukls ykkar
skólasystkinanna.
Þetta fikt hefði reyndar aldrei átt að fá líf enda er
þegar komið í Ijós að það er hægara sagt en gert að
losna frá afleiðingum og áhrifum þess. Þið áttuð þó
vart von á því og ykkur gat sennilega ekki órað fyrir
afleiðingunum. Það er miklu skynsamlegra fyrir ykk-
ur skólasystkinin að leggja leið ykkar í kirkjur lands-
ins fremur en að láta þetta ömurlega ástand halda
áfram að valda ykkur vanda og jafnvel síðar hvers
kyns skaða. Best er að láta sér segjast og gera ekki
fleiri svona barnalegar en stórvarasamar tilraunir til
að ná sambandi við þá sem farnir eru af jörðinni.
ANDAGLAS OG RAFMAGN
Það verður að segjast, eins og áður hefur verið bent
á, að eitt það varhugaverðasta sem við getum tekið
okkur fyrir hendur andlega séð er að fara I anda-
glas. Þegar slikt gerist er venjulega verið að opna
fyrir og leysa úr læðingi einhver öfl sem þeim sem
fara í andaglas er ekki kunnugt um hvaða vanda
geta valdið þeim sem kuklið prófar eða framkvæmir.
Þið félagarnir spyrjið hvort hættulegt sé að fara i
44 VIKAN 13.TBL.