Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 44
Vogin
24. september - 23. október
ÁSTAMÁLIN TAKA Á SIG DÝRÐARLJÓMA
Júpíter, pláneta þenslu og þroska, flytur með sér bestu afstöður
ársins. Júpfter virkjar tjáninguna hjá þér og töluverður vöxtur
og þroski getur átt sér stað. Hugsanlegt er að þú takir að þér
verkefni sem gera kröfur til gáfna, orðaforða og stíls. I kjöl-
farið er að vænta umræðna, samtala, funda og námskeiða. Þótt
þú fáist ekki við skriftir gæti hugsast að þér berist slík verkefni.
Þú gætir líka sest á skólabekk aftur. Afstöðurnar gætu bæði
vísað til menntunar og þroska. Þú gerir áreiðanlega eitthvað til
að víkka sjóndeildarhringinn eða fá nýja reynslu. Utanlands-
ferðir liggja beinast við, því lilið er á Júpíter sem plánetu utan-
ferða. Helst ættirðu að fara til staða sem hafa allt önnur áhrif á
þig en þeir sumardvalarstaðir sem þú heimsækir yfirleitt.
Andlegur þroski getur líka aukist á árinu. Júpíter er líka
táknrænn fyrir gúrúinn, kennarann eða annað sem færir með
sér vitundarskriðu og nýtt innsæi. Munið þá, að einu gildir hve
áhugaverðar afstöðurnar eru, það er okkar að breyta þeim í
veruleika.
Satúrnus, mjög afgerandi pláneta hvað markmið varðar, er í
sjötta húsi þínu. Það snertir dagleg störf, ásamt heilsu. Þetta
getur þýtt að dagleg störf verða umfangsmeiri og að þetta verði
vinnuár. Það þýðir þó ekki að þú eigir að ganga fram hjá nein-
42 VIKAN