Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 37
etan Mars er í bestri afstöðu við merkið þitt. Það er frá 23. jan-
úar tjl 25. maí og frá 22. júlí til 7. september.
Samvinna og sambönd geta orðið þér ærið umhugsunarefni
þetta árið. Júpíter, pláneta þenslu og þroska, virkjar einmitt
þetta svæði. Það getur gefið góða raun og þýtt að möguleikar
þínir til þroska batna með nánum samböndum. Þau geta verið
við maka, samstarfsaðila eða sambönd við aðstöðufólk.
Ef þú ert ekki í sambandi eða samvinnu getur slíkt komið til
tals. Of miklar samverustundir við kærasta eða vini geta valdið
vandamálum í sambandi við skyldur, atvinnu eða menntun. Þú
vilt líka taka þátt í samverugleðinni en verður nú að stilla þig
inn á að umhverfið geti leyft sér meira en þú og að stundum
verðir þú að hafna skemmtunum nteð fólkinu í kringum þig.
Þú getur notað Venusartímabilin á árinu til þess að slaka á og
rækta ástina, rómantíkina eða skemmtanir. Þetta á við um
tímabilin 3. til 28. mars, 24. apríl til 16. maí, 11. júní lil 5. júlí
(besta tímabilið), 30. júlí til 23. ágúst, 17. september til 10. októ-
ber og 22. til 31. desember.
Mestu breytingar ársins eru án efa í einkalífinu. Plútó fer inn
í ástvinahús þitt í upphafi ársins, eða 16. janúar, og staðsetning
Venusar og Mars á sama stað í nóvember, bendir til þess að
meiri breytingar verði á þínum málum þetta ár en þú hefur
upplifað árum saman - hugsanlega meiri en þú ert búinn undir.
Ef þú verður ástfanginn á þessu ári - og allt bendir til að svo
fari - þá verður það af svo mikilli ástríðu og á einhvern þann
hátt, að allt, sem þú hefur uplifað fram til þessa, verður sem
hjómið eitt. Tilfinningaleg sambönd þín verða aldrei söm.
Eigi svo stórkostleg reynsla að geta komist inn í líf þitt
þarftu þó að rýma fyrir henni. Viðskilnaður við gamla vini og
vonbrigði vegna hluta, sem eitt sinn lofuðu góðu en skiluðu
engu, verða um mitt árið. Þetta veldur miklum sálarrannsókn-
um og eftirsjá en er alll hluti af stærri ráðagerð.
VIKAN 35