Vikan


Vikan - 20.01.1995, Page 37

Vikan - 20.01.1995, Page 37
etan Mars er í bestri afstöðu við merkið þitt. Það er frá 23. jan- úar tjl 25. maí og frá 22. júlí til 7. september. Samvinna og sambönd geta orðið þér ærið umhugsunarefni þetta árið. Júpíter, pláneta þenslu og þroska, virkjar einmitt þetta svæði. Það getur gefið góða raun og þýtt að möguleikar þínir til þroska batna með nánum samböndum. Þau geta verið við maka, samstarfsaðila eða sambönd við aðstöðufólk. Ef þú ert ekki í sambandi eða samvinnu getur slíkt komið til tals. Of miklar samverustundir við kærasta eða vini geta valdið vandamálum í sambandi við skyldur, atvinnu eða menntun. Þú vilt líka taka þátt í samverugleðinni en verður nú að stilla þig inn á að umhverfið geti leyft sér meira en þú og að stundum verðir þú að hafna skemmtunum nteð fólkinu í kringum þig. Þú getur notað Venusartímabilin á árinu til þess að slaka á og rækta ástina, rómantíkina eða skemmtanir. Þetta á við um tímabilin 3. til 28. mars, 24. apríl til 16. maí, 11. júní lil 5. júlí (besta tímabilið), 30. júlí til 23. ágúst, 17. september til 10. októ- ber og 22. til 31. desember. Mestu breytingar ársins eru án efa í einkalífinu. Plútó fer inn í ástvinahús þitt í upphafi ársins, eða 16. janúar, og staðsetning Venusar og Mars á sama stað í nóvember, bendir til þess að meiri breytingar verði á þínum málum þetta ár en þú hefur upplifað árum saman - hugsanlega meiri en þú ert búinn undir. Ef þú verður ástfanginn á þessu ári - og allt bendir til að svo fari - þá verður það af svo mikilli ástríðu og á einhvern þann hátt, að allt, sem þú hefur uplifað fram til þessa, verður sem hjómið eitt. Tilfinningaleg sambönd þín verða aldrei söm. Eigi svo stórkostleg reynsla að geta komist inn í líf þitt þarftu þó að rýma fyrir henni. Viðskilnaður við gamla vini og vonbrigði vegna hluta, sem eitt sinn lofuðu góðu en skiluðu engu, verða um mitt árið. Þetta veldur miklum sálarrannsókn- um og eftirsjá en er alll hluti af stærri ráðagerð. VIKAN 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.