Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 41
orðum eru miklar líkur á því að þú starfir hratt og vel á þessum
tímabilum og getir kannski lokið við viss verkefni á mettíma.
Marstímabilin auka líka líkamlega vellíðan - þér finnst þú
hress og vel upplagður. Þess vegna er góð hugmynd að fram-
kvæma þau verkefni sem gera sérstakar kröfur um umfram-
orku á fyrrnefndum tímabilum. A Marstímabili er einfaldlega
hægt að afkasta meiru.
Það eru ekki bara skemmtileg og skapandi verkefni sem þú
ert upptekinn af á árinu. Þú beinir einnig sjónum þínum að lík-
ama, mataræði og heilsu. Þeir, sem höfðu gleymt sér og sinni
heilsu, fá nú kjörið tækifæri til að laga það með öllu frá fyrir-
byggjandi heimsókn til læknisins yfir í að fara á martarkúr, lifa
heilbrigðara lífi og læra meira um bætiefni.
Eins og fyrr var getið verður hitað vel undir ást og samveru
árið ’95. Hvað sem öllu öðru lfður er ástarplánetan Venus í
góðri afstöðu við merkið þitt á eftirfarandi tfmabilum: 8. janúar
til 5. febrúar, 24. apríl til 16. maí, 11. júní lil 5. júlí, 30. júlí til 23.
ágúst (hér er Venus sérstaklega sterk), 19. september til 10.
október og 4. nóvember til 27. nóvember. Þessi Venusartímabil
geta ýtt undir samvinnu, skilning, samúð og sambönd við fólk.
Það á einnig við unt heimilið, svo hafir þú eitthvað út á nán-
ustu ættingja að setja gæti stemmningin snúist til hins betra.
Hvað makann varðar verður svolítið meiri rómantík í gangi.
Og eigir þú engan rnaka eru mjög góðar horfur á að finna hann
á sömu tímabilum.
VIKAN 39