Vikan - 20.01.1995, Blaðsíða 53
raunir frá þinni hálfu eða hins aðilans áður en allt fellur í ljúfa
löð.
Arið býður einnig upp á Marstímabil sem auðveldara er að
nota á uppbyggilegan hátt. Það eru tímabilin frá 22. júlí til 7.
september og frá 21. október til 30. nóvember. Annars koma
sterk áhrif Júpíters í veg fyrir það að dirfska þín dvfni á nokk-
urn hátt, jafnvel ekki á erfiðustu stundunum.
Astin og hinar skemmtilegri hliðar tilverunnar líta almennt
vel út árið 1995 en það sakar aldrei að nota sér bestu Venusar-
tímabil ársins, sem eru eftirfarandi: 8. janúar til 5. febrúar, 3.
mars til 28. mars, 24. apríl til 16. maí, 11. júní til 5. júlí, 17. sept-
ember til 10. október, 4. til 27. nóvember og 22. til 31. desem-
ber.
Venus stjórnar einnig fjárhagi og verðmætum og þess vegna
geturðu verið heppnari en ella í peningamálum á þessum tíma-
bilum.
Þeir, sem eru fæddir fyrstu dagana í merkinu, taka trúlega
eftir nýjum og áhugaverðum áhrifavaldi á nýja árinu. Uranus
lítur við í Vatnsberamerkinu frá apríl til júnímánaðar, kemur
aftur í janúar 1996 og verður þar síðan næstu sjö ár. Með öðr-
um orðum er verið að boða Vatnsberum nýja tíma. Þetta verða
tímar þar sem ný áhugamál og sjónarmið koma í staðinn fyrir
gömul mynstur og úreltar skoðanir. Frelsis- eða uppreisnar-
þörfin eykst og verið getur að vart verði meiri frumleika og
sköpunarmátts.
VIKAN 51