Vikan


Vikan - 20.01.1995, Síða 53

Vikan - 20.01.1995, Síða 53
raunir frá þinni hálfu eða hins aðilans áður en allt fellur í ljúfa löð. Arið býður einnig upp á Marstímabil sem auðveldara er að nota á uppbyggilegan hátt. Það eru tímabilin frá 22. júlí til 7. september og frá 21. október til 30. nóvember. Annars koma sterk áhrif Júpíters í veg fyrir það að dirfska þín dvfni á nokk- urn hátt, jafnvel ekki á erfiðustu stundunum. Astin og hinar skemmtilegri hliðar tilverunnar líta almennt vel út árið 1995 en það sakar aldrei að nota sér bestu Venusar- tímabil ársins, sem eru eftirfarandi: 8. janúar til 5. febrúar, 3. mars til 28. mars, 24. apríl til 16. maí, 11. júní til 5. júlí, 17. sept- ember til 10. október, 4. til 27. nóvember og 22. til 31. desem- ber. Venus stjórnar einnig fjárhagi og verðmætum og þess vegna geturðu verið heppnari en ella í peningamálum á þessum tíma- bilum. Þeir, sem eru fæddir fyrstu dagana í merkinu, taka trúlega eftir nýjum og áhugaverðum áhrifavaldi á nýja árinu. Uranus lítur við í Vatnsberamerkinu frá apríl til júnímánaðar, kemur aftur í janúar 1996 og verður þar síðan næstu sjö ár. Með öðr- um orðum er verið að boða Vatnsberum nýja tíma. Þetta verða tímar þar sem ný áhugamál og sjónarmið koma í staðinn fyrir gömul mynstur og úreltar skoðanir. Frelsis- eða uppreisnar- þörfin eykst og verið getur að vart verði meiri frumleika og sköpunarmátts. VIKAN 51

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.