Vikan - 20.08.1995, Side 21
Af einhverjum ástæð-
um hafa á liðnum ár-
um stórlega aukist
siálfsvíg ungra drengja.
Ohugguleg staðreynd sem
minnir fremur á faraldur en
eitthvað annað. Eftir því sem
komið hefur fram er engin
ein einhlít skýring á þessari
vá sem er óneitanlega ein sú
óhugnanlegasta sem hægt
er að hugsa sér. Mögulega
má finna samband á milli
ótæpilegra sjálfsvíga
drengja og t.d. vímuefna-
neyslu, en ekki komast að
niðurstöðu. Fáir þeirra hafa
verið að kljást við þann
hörmulega vanda. Frekar
mætti nefna sjálfsútskúfun,
of miklar samfélagslegar
kröfur, örðugar heimilisað-
stæður og gölluð ástar- eða
tilfinningasambönd eða eitt-
hvað annað.
VIÐSJÁRVERT
VEGANESTI OG
UPPELDISFJÖTRAR
Uppeldi okkar hefur mikið
að segja og sennilega gætir
þeirra áhrifa lengst í sálar-
tetrinu sem mótuð eru í byrj-
un. Töluverður mismunur rík-
ir ennþá í uppeldi kynjanna
og engu líkara á stundum en
að sumir fullorðnir trúi því að
drengir séu mun sterkari
andlega en stúlkur. Strákar,
sem minntir eru stöðugt á
það í uppvexti sínum að
gæfulegra sé að gráta ekki
og tala alls ekki um tilfinning-
ar sínar við aðra eiga, ekki
sjö daganna sæla andlega.
Það er ekki heppilegt ef pilt-
ar, sem eru bæði viðkvæmir
og óöruggir að eðlisfari, fái
strax í frumbernsku þá öm-
urlegu tilfinningu að þeir séu
afbrigðilegir ef þeim verður á
að sýna viðkæmar tilfinning-
ar. Þetta er þó staðreynd
sem víða viðgengst. Slík af-
staða skaðar sjálfstraustið
og aflagar heilbrigða tiltrú á
eigið ágæti. Og er því við-
sjárvert veganesti sem fjötr-
ar en frelsar ekki.
KONFEKTMOLAÍMYND
OG HUGRAKKIR FÍLAR
Þegar svo þessir drengir
komast á unglingsár eru
kröfurnar til þeirra ennþá
meiri og óöryggi þeirra í há-
marki. Þeir eiga að vera í
laginu eins og Tarsan, hafa
hugrekki á við tvo fíla og
JÓNA RÚNA KVARAN SKRIFAR:
SJÁLFSVÍG
UNGRASRAKA
hafa vit á við Einstein. Þetta
eru óréttmætar kröfur um að
strákar eigi að vera andlega
sem líkamlega óeðlilega
sterkir og stæltir. Eiginlega
hreinustu konfektmolar innst
sem yst. Þeir þjálfast sem
sagt flestir snemma í að fela
með hvers kyns brynjum
djúpar tilfinningar sem þeim
eru eðlilegar, bara af þv( að
þær tengjast óöryggi og
þykja ekki beint karlmann-
legar.
ÓHEPPILEGAR
GÆÐAKRÖFUR OG
GERVIGLEDI
Sumir þeirra reyna að
uppfylla þessa ímynd hetj-
unnar með því að nota jafn-
vel vímuefni til að styrkja sig
í hópnum og herða sig uppí
töffheit og gervigleði sem
gefur þeim ekkert. Það er ör-
ugglega ekki neitt eitt sem
fær unga og efnilega drengi
til að svipta sig lífinu. Það
sem t.d. gæti orsakað lífs-
flótta meðal þeirra er hugs-
anlega ótti þeirra við að
standast ekki þær gæðakröf-
ur sem foreldrar þeirra og
samfélagið gera til þeirra um
karlmennsku. Sé svo þá
kann að vera að þeir upplifi
sig hjálparvana og einmana
og hafi þörf fyrir að trúa ein-
hverjum fyrir ótta sínum og
áhyggjum, en hvorki kunni
það né þori því.
VIÐKVÆMAR
TILFINNINGAVERUR
Strákar verða að átta sig á
því að það er mjög gott, og
hyggilegt reyndar, að losa
um sem flestar tilfinninga-
brynjur og hina ýmsu svipti-
vinda sálarlífsins með því að
opna hjarta sitt og gráta dá-
lítið, eða mikið, ásamt þvi að
losa litillega um málbeinið af
og til. Unglingspiltar eru
miklar og viðkvæmar tilfinn-
I ingaverur sem geta haft
áhyggjur út af nánast öllu.
Allt frá of stórum tám til apa-
legra handleggja. Það að
láta sig hverfa af yfirborði
jarðar og á vit þess ókunna
er enginn lausn á þannig
ástandi og verður aldrei.
Eðlilegast er að reyna að
vinna úr hverjum vanda hér
og nú með hjálp þeirra sem
þykir vænt um okkur og jafn-
framt nota okkur stuðning
sérfróðra.
BITIÐ Á JAXLINN OG
BARIÐ FRÁ SÉR
Karlmenn ættu hiklaust að
gefa sjálfum sér tækifæri til
að finna sig vanmáttuga og
óörugga og að venja sig á
að tala um þannig líðan. Það
er þeim mun eðlilegra, ef
þannig vill til, heldur en að
bíta á jaxlinn og bölva í
hljóði og gráta svo í laumi
eða skella hurðum og lemja
kannski frá sér í þokkabót.
FRH. Á BLS. 44.
8. TBL. 1995 VIKAN 21