Vikan - 20.08.1995, Blaðsíða 33
ENGINN DANS Á
RÓSUM
En þetta er nú enginn
dans á rósum til að byrja
með, get ég sagt þér. Það
hafa komið ansi margar
stundir þar sem manni hefur
verið skapi næst að pakka
saman og fara. Það er af-
skaplega erfitt að komast
„inn fyrir dyrnar" og þangað
til er mjög erfitt að lifa af
þessu. Eg held að ég standi
einhvers staðar í námunda
við þær en hversu langur
tími mun líða þar til þær opn-
ast veit enginn. Þar sem ég
er að vinna „freelance", eins
og flest allir í þessum
„bransa", fer stór hluti af
starfinu í það að vakna á
morgnana, hlaupa í simann
og láta þá, sem maður er í
sambandi við, vita að maður
sé á lausu. Þetta átti ég erfitt
með að læra í upphafi en
svona er þetta. í stað þess
að sitja úti í horni með ís-
lendingunum þarf maður
stöðugt að vera að tala við
fólk og kynna sig og því fleiri
boð og mannafundi sem þú
ferð í og því betri áróðurs-
maður sem þú ert fyrir sjálf-
an þig, því betra.
SPENNANDI TÍMAR
„En þetta eru mjög spenn-
andi tímar fyrir klippara (
dag. Því ný tækni svokölluð
„nonlinear" tölvutækni er al-
gjörlega að taka yfir og hún
auðveldar okkur mjög að
klippa saman ólík myndbrot
á hina ýmsu vegu á ör-
skömmum tíma þannig að
efnisnýting er betri og
klipparinn hefur miklu betri
yfirsýn yfir það sem hann er
að gera. Þetta er tækni sem
hefur ruðst inn á markaðinn
á tveim árum og nær allt
efni, sem unnið er í dag, er
höndlað með þessari nýju
tækni. Þetta er það besta
sem hefur gerst f heimi
klipparans.'1
JAPANINN VAR
BORINN UPP Í
FLUGVÉLINA
„Það minnir mig nú á verk-
efni sem ég var að klippa fyrir
Japanskt fyrirtæki. Þetta var
svona „interactive tölvuleikur"
sem hafði verið kvikmyndað-
ur á fjóra mismunandi vegu til
þess að tölvunotendurnir
hefðu valmöguleika, að sjálf-
sögðu. Nema þetta þurfti að
vera fullgert fyrir ákveðinn
tíma og þá meina ég að sjálf-
sögðu komið á borð hjá þeim
í Japan á tilteknum degi. Til
að gera langt mál stutt hef ég
aldrei lent í annarri eins törn
á ævi minni. Sá, sem hafði
yfirumsjón með verkinu, var
Japani sem ekki talaði stakt
orð í ensku svo ráða þurfti
túlk til þess að koma skila-
boðum á milli. Þarna vorum
við í heilan mánuð, að jafnaði
tuttugu tíma á dag, að klippa.
Japaninn átti að fara upp í
flugvél tíunda ágúst til Japan
þar sem öll deildin beið eftir
þessu til að kynna það. Við
áttum eftir að fínklippa allt,
hljóðsetja og koma fyrir öllum
titlum („kreditum") og öðru og
þarna vorum við í raun að
klippa fjórar bíómyndir í einu!
Þarna sátum við sem sagt
við sólarhringum saman og
Japanagreyið lá þarna í sóf-
anum fyrir aftan mig skjálf-
andi á beinunum, enda feng-
um við það loks upp úr hon-
um að ef þetta kláraðist ekki í
tíma yrði hann rekinn! Ég hélt
á hverjum degi að hann
myndi fá taugaáfall. Þetta
endaði svo með því að síð-
asta daginn var framleiðand-
inn kominn í algjöra þröng og
hljóp allan daginn manna á
milli með ávísanaheftið á lofti
og mútaði þeim, enda hafði
mannskapurinn unnið langt
yfir öll leyfileg mörk. Það,
sem bjargaði honum, var að
það hafði verið skráð í samn-
inginn að ef þetta yrði ekki til-
búið á tíma fengist ekki loka-
greiðslan. Sem betur fer var
þetta allt saman loksins til-
búið klukkutíma fyrir brottför-
ina og Japaninn var hálfpart-
inn borinn upp ( vélina. Ég
þori eiginlega ekki til þess að
hugsa hvað hefði verið gert
við blessaðan manninn ef
þetta hefði ekki náðst.“ □
llfllM
Hvers vegna að borga
1200 kr. fyrir kvartlítra af
Aloe Vera þegar þú getur
fengið tvöfalt meira
magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á aðeins 1000kr.?
Hvers vegna að bera á sig 2% af
þráavarnarefnum þegar þú getur
fengið 99,7% hreint Aloe Vera frá
Banana Boat? Biddu um Banana
Boat ef þú vilt 99,7% hreint Aloe
Vera gel á 40-60% lægra
verði. Það er alltaf ferskt
(framleitt eftir pöntun), án
spírulínu, án kemískra lyktar-
efna eða annarra ertandi of-
næmisvalda og fæst í 6 mismun
andi túpu-, brúsa- og flöskustærðum
Þú finnur engan mun á því að bera ferska,
99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat og
hlaup úr Aloe Vera blaði beint á sár, bólgur eða
útbrot. Þrófaðu líka Banana Boat E-gelið á
sölustöðum Banana Boat (fæst einnig í 3
stærðum hjá Samtökum psori-
asis- og exemsjúklinga),
hrukkuhindrandi og húðmýkjandi
Banana Boat A-gel, baugaeyðandi
og húðstyrkjandi Banana Boat
kollagen gel, hraðgræðandi
Banana Boat varasalvann
með sólarvörn #21, græðandi,
mýkjandi og rakagefandi Banana
Boat Body Lotion með Aloe Vera,
lanolíni, A-, B-, D- og E-vítamíni,
húðnærandi og öldrunarhindrandi
Banana Boat djúpsólbrúnkugel fyrir
Ijósaböð. Banana Boat sólmarg-
faldarann sem milljónfaldar sólar-
Ijósið í skýjaveðri, Banana Boat sól-
varnarkremið með hæsta sólvarnar-
stuðulinn á markaðnum, #50, næringar-
kremin Banana Boat Brún-Án-Sólar í 3
gerðum, Naturica BK Sólbrún-lnnan-Frá,
Naturica hrukkubanann, alnáttúrlega svita-
lyktareyðinn, kristalsteininn sem þú strýkur eftir
blautum handarkrika þar sem kvikna engar lyktarbekteriur.
Biddu um Banana Boat i apótekum, á sólbaösstofum, i snyrtivöruverslunum, öllum heilsubúöum utan Reykjavikur og í Heilsuvali, Barónsstig 20,'Zr 562 6275
8. TBL. 1995 VIKAN 33
STARFAÐ ERLENDIS