Vikan - 20.08.1995, Blaðsíða 25
STJÖRNUSn& FYMR SEPIEMBER
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Líttu á þann tíma, sem þú
verð til að fara ofan í saumana á
ýmsum málefnum og smáatriðum í
vinnunni, sem undirbúning framtíðar-
innar. Annars er hætt við að tiltætian-
ir og kröfur annarra f þinn garð eigi
eftir að hafa veruleg áhrif á þig. Auk
þess mun smámunasemin nýtast þér
til þess að gera nákvæmari áætlanir
og í samningaviðræðum um laun og
stöðu. En gleymdu ekki eigin heilsu.
Nú er ágætur tími til þess að meta
hvað í heilsufarinu, hamingjunni eða
örygginu þarf að athuga sérstaklega.
NAUTID
21. apríl-21.
maí
Ást og hamingja eru
aðalsmerki mánaðar-
ins og auðvelda þér
þess vegna að slaka
á og njóta lífsins. Á
hinn bóginn gætirðu
orðið grandalaus
gagnvart ýmsum til-
boðum. Það gæti því
reynst erfitt að finna
jafnvægið annars
vegar milli heilbrigðr-
ar skynsemi, þar sem
Satúrnus á í hlut, og
hins vegar væntinga
og drauma, þar sem
koma við sögu Úran-
us og Neptúnus. En
vogun vinnur og vog-
un tapar þannig að
þú skalt láta slag
standa ef þú vilt á
annað borð breyta
um lifnaðarhætti. Það getur síðan
leitt til þess að þú finnir hjá þér eig-
inleika sem þú vissir ekki um.
TVÍBURARNIR
22. maí - 22. júní
Frá 23. ágúst, þegar sólin
snerti þann streng í Tvíburamerkinu
sem hefur með lífsmynstur að gera
og fullt tungl í Meyjarmerkinu fylgdi í
kjölfarið, varð Ijóst að breytingar
væru óumflýjanlegar. Verðu fyrri
helmingi septembermánaðar til
þess að velta fyrir þér ýmsum
möguleikum í stöðunni. Taktu síðan
ákvarðanir í framhaldi af því, þó ekki
síöar en þann 14. Þegar þú hefur
valið þér tiltekna stefnu ætti allt að
falla í Ijúfa löð, næstum eins og fyrir
galdra sakir.
fKRABBINN
23. júní - 23. júlí
Allir eru nú að biða eftir að
þú ákveðir þig í tilteknu máli. Þér
kann að líka það ágætlega að aðrir
láti sig þínar fyrirætlanir varða en
þetta aukna mikilvægi þitt getur
ennfremur valdið þér hugarangri
loksins þegar þú hefur tekið af skar-
ið. Athyglin getur ruglað þig í ríminu
og þú vilt stundum vera laus við
hana til þess að geta einbeitt þér að
því sem í raun og veru er í brenni-
depli. Straumhvörf verða þann 14.
og þegar allt er um garð gengið
kemstu að því að reynslan af því að
hafa tekið á málinu er dýrmæt og
verður ekki frá þér tekin. En þegar
endanlega hefur verið búið um hnút-
ana skaltu tafarlaust sinna eigin
hugðarefnum.
LJÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Óraunhæfar hugmyndir
verða sjaldnast að veruleika, alveg
sama hversu forvitnilegar þær eru.
Þetta gildir ekkert síður um fjármálin
en annað og þú verður vör við það í
septembermánuði þegar færi gefst
til að koma á reglu í þeim efnum.
Frestaðu því ekki að horfast í augu
við vandann því aðeins á þann hátt
finnurðu farsæla lausn. Eftir það
geturðu litið til nýrra hugmynda og
kynnt þær fyrir öðru fólki.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Sólin er nú í Meyjarmerkinu
og hagnýtnimáninn Satúmus einnig.
Þetta gerir það að verkum að í hönd
fer góður timi til þess að sinna þeim
vandamálum sem standa þér næst.
Hafðu í huga ýmsa möguleika sem
gerðu fyrst vart við sig snemma árs
þvi um þessar mundir munu líklega
skjóta upp kollinum einstaklingar
sem gera þér kleift að nýta þér
þessa kosti. Meyjar láta sér ekki
vaxa í augum þótt þær þurfi að hafa
fyrir hlutunum og nú er rétti tíminn til
þess að láta hendur standa fram úr
ermum.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Þótt ýmislegt sé þess eðlis
að hreint sé gengið til þeirra verka
þá á það ekki við um fjármál þín
þessa dagana. Þar er til heilla best
að beita lipurð, þolinmæði og inn-
sæi. Slík framganga mun verðlaun-
uð með vendipunkti
þann 14. í einkalíf-
inu eru ýmsar blikur
á lofti sem eiga há-
mark sitt í undarleg-
um atburðum með
nýju tungli í Vogar-
merkinu þann 24.
SPORÐ-
DREKINN
24. okt. -
22. nóv.
Sporðdrekar kæra
sig lítt um að þiggja
aðstoð frá öðrum.
Þeir bera sínar lífs-
klyfjar í flestum til-
vikum einir og
óstuddir og telja
veikleikamerki að
biðja sér aðstoðar. (
september munu
þeir hins vegar geta
brugðið út af þess-
um vana, sem yfir-
leitt hefur einangrað þá, þannig að
þeim standi ýmsar dyr opnar að nýj-
um samböndum, allt frá lauslegum
kynnum til náinna. Og þrátt fyrir að
þér þyki þetta dáiítið óþægilegt fylgir
því um leið mjög notaleg tilfinning.
Tilvera Mars í Sporðdrekamerkinu
mun auðvelda þér að takast á við
þessar nýju aðstæður.
BOGMADURINN
23. nóv. - 21. des.
Það verður mikið um að
vera þennan mánuðinn i lífi Bog-
manna og ýmis tækifæri liggja á
lausu. Munu aðstæðurnar vafalaust
stuðla að breytingum, bæði heima
og í vinnunni. Ástin gæti blómstrað
eftir að hafa birst mjög óvænt. Jafn-
framt þessu munu gerðar miklar
kröfur til þín í vinnunni og því
ástæða til þess að sækja einnig
fram á þeim vettvangi. Vegna áhrifa
frá Satúrnus þann 14. virðist þá
verða einhvers konar vendipunktur
sem hefur áhrif bæði á líf þitt og
starf. í kjöifarið opnast þér nýr og
heillandi heimur.
STEINGEITIN
22. des. - 20. janúar
Þótt nú sé ekki rétti tíminn
til að taka ákvarðanir um ýmis
málefni, vegna þess hve margt er
enn ófrágengið, þá reyna margir
að þvinga þig til þess. Útskýringar
þínar koma líklega að litlu haldi og
staða Satúrnusar bendir til að þú
verðir í einhverjum tilvikum að láta
kylfu ráða kasti frekar en bíða
betri tíma. Fyrir áhrif sólarinnar á
Steingeitarmerkið þann 23. finnst
þér að mikilvægar úrlausnir þoli
enga bið en meðan samskipta-
máninn Merkúr hnígur er ráðlegra
Steingeitum að sitja á strák sínum
þrátt fyrir allt.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Góðar tímasetningar skipta
miklu og glöggir vatnsberar, sem
gera sér grein fyrir þessu, halda
aftur af sér í fjárhagslegu tilliti
þangað til áhrifa sólar fer að gæta
á merkið þann 20. Ýmislegt, sem
drífur á daga þína þangað til, gæti
ruglað þig í ríminu og valdið tog-
streitu, einkum í því sem snýr að
peningum og ýmsum hagnýtum at-
riðum. Á tímabilinu þarftu að taka
margar erfiðar ákvarðanir. En sá er
einmitt fórnarkostnaður þess að
öðlast frelsið síðar meir. Þannig
skaltu taka ákvarðanirnar með
framtiðina í huga frekar en stundar-
hagsmuni.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Fáir myndu mótmæla þér
þótt þú kenndir öðrum um þá erf-
iðleika sem að þér steðja um
þessar mundir. En staða stjarn-
anna mun auðvelda þér að líta í
eigin barm og horfast í augu við
raunverulegan vanda heimafyrir.
Með því losnarðu undan nagandi
vafa og fölskum réttlætingum
þannig að þú getir síðan borið höf-
uðið hátt. Umfram allt skaltu taka
lífinu með ró og velta hverjum
steini sem verður á vegi þínum
vegna þess að nú er góður tfmi til
þess að fá útrás fyrir fróðleiksfýsn-
ina. Á meðan geturðu dregið úr
þeirri miklu athygli sem peninga-
málin hafa notið. Engu að síður
getur sjáifsskoðunin orðið til þess
að hagur strympu hækki, hvort
tveggja í persónulegum og fjár-
hagslegum efnum.
STJÖRNUSM Á FRÓÐA-ÚNUNNI: 9041445
Þar getur þú heyrt alinælisdagaspá og róniantíska spá. Verð 39,90 ninuitan.
8. TBL. 1995 VIKAN 25
STJORNUSPA