Vikan - 20.08.1995, Qupperneq 32
STARFAÐ ERLENDIS
listarmenn á borð við Dwight
Yoakam og Guns’n Roses
og nú síðast var hann að
klippa myndband við titillag
myndarinnar „Dumb and
Dumber“ með þeim télögum
Jim Carrey og Jeff Daniels í
aðalhlutverkum. Utan úr fár-
viðrinu - þar sem enn rignir
köttum og hundum (cats and
dogs) - stígur hann inn í yl-
inn, holdvotur og eldhress.
næturnar sem ég átti auðvit-
að að gera. En mér leiddist
svo mikið að ég fór að fletta
bæklingum þar sem verið
var að setja upp klippigræjur
og las þá eina nóttina. Ég fór
að fikta við tækin sem ég
mátti nú ekki gera en eitt af
því sem húsvörðurinn átti að
sjá um var að taka upp á
band efni sem sent var um
gervihnött frá bresku músík-
„Maður hefur Mér leikur fyrst forvitni á að
biarga vjta ^vað hafi borið hann svo
ser sialfur hvaó , , ,
semáhefur lan9f fra sogueyjunm og
duniö. Þaö er hvert hann stefni, þessi sér-
nokkuó sem er |ega notalegi maður?
ometanlegt." jíg Qg unnus(a m(ni Linda
Björk Bragadóttir, komum
hingað fyrir fimm árum síð-
an.“ „Ég hafði verið að vinna
á Stöð 2 og var eiginlega bú-
inn að gera allt þar sem mig
langaði til að gera. Það er nú
reyndar saga að segja frá
því hvernig ég byrjaði að
vinna á Stöðinni. í upphafi
Stöðvarinnar var ég ráðinn
sem húsvörður í Myndver-
inu. Það vantaði einhvern til
þess að vakta húsið meðan
smiðirnir voru að byggja og
allt var á lokastigi fyrir opnun
Stöðvarinnar. Ég gerði það
að sjálfsögðu. Rafvirkjarnir
mættu fyrst á morgnana og
fundu mig þá oftar en ekki
sofandi á gólfinu og voru
farnir að gera grín að því svo
ég ákvað að fara að vaka á
stöðinni „Music Box“ (undan-
fari MTV). Næstu nótt á eftir
notaði ég svo efnið og klippti
upp úr því einn þátt. Þar
sem ég var að klára þetta
labbaði Jónas R. Jónsson
inn og spurði hvað ég væri
að gera. Ég sagðist bara
vera að leika mér og þá vildi
hann fá að sjá þetta. Ég
spólaði til baka og sýndi
honum þetta og var ráðinn
klippari eftir hádegi! Minn
ferill hófst því þarna sem
klippari á músíkmyndbönd-
um og næstu nótt var ráðinn
annar næturvörður!
Ég hafði aldrei velt því fyrir
mér fyrr hvað sjónvarp væri
en þarna varð ekki aftur snú-
ið. Þetta var eitthvað fyrir
mig. Ég vann eftirleiðis við
klippingar, tökur og fram-
leiðslu, og guð má vita hvað,
og þar sem ég var kominn
með bakteríuna langaði mig
að mennta mig í sjónvarps-
og kvikmyndagerð."
LANGAÐI AÐ BREYTA
TIL
„Ég var ekki nema tuttugu
og tveggja ára gamall og
kærastan, Linda, var búin
með skólann. Hana langaði
til þess að fara að læra graf-
íska hönnun svo við slógum
bara til. Los Angeles er nátt-
úrlega hjarta sjónvarps- og
kvikmyndagerðar svo það
kom eiginlega ekkert annað
til greina. Ekki nóg með að
þetta sé Hollywood heldur
eru flestallir í borginni á ein-
hvern hátt tengdir kvik-
myndaiðnaðinum og sjón-
varpi. Við reiknuðum með að
vera þrjú ár í B.A. námi og
héldum satt að segja að við
myndum taka fyrstu vél heim
eftir útskrift en við erum hér
enn. Smátt og smátt kemst
maður betur inn í alla hluti
og fer að verða hluti af sam-
félaginu. Það er líka mjög
heillandi að reyna eitthvað
nýtt. Auðvitað spilar inn ( að
ástandið heima er kannski
ekki allt of gott í augnablik-
inu og því gott að reyna fyrir
sér annars staðar1'.
Hvernig stór á því að þú
fórst að vinna með köppum
eins og Guns ’n Roses og
kántrýstjörnunni Dwight
Yoakam?
„Eftir að ég kláraði skól-
ann hef ég verið að vinna
fyrir fjóra leikstjóra sem ég
vinn allt fyrir. Einn þeirra er
íslendingurinn Ágúst Jak-
obsson sem á dögunum
skrifaði undir samning við
Fm Rocks, mjög stórt fram-
leiðslufyrirtæki á myndbönd-
um. Ég hef klippt allt fyrir
hann, þar með talið heimild-
armynd og kynningarefni um
Guns ’n Roses sem var
mjög skemmtilegt og margra
mánaða vinna. Ég á Gústa
mikið að þakka enda gengur
þetta allt saman út á að
þekkja mann sem þekkir
mann. . .“
EINAR OG
UMBOÐSMAÐUR
DWIGHT YOAKAM Í
ÓLSEN ÓLSEN
„Annar leikstjóri, sem ég
vinn fyrir, hefur verið að leik-
stýra myndböndum fyrir
Dwight Yoakam og það er
nú eiginlega mjög skemmti-
leg saga á bak víð það.
Fyrsta myndbandið, sem ég
gerði fyrir hann var „Try not
look so pretty" sem er af síð-
ustu plötunni hans „This
time". Dwight er þannig karl
að hann þarf alltaf að vera á
staðnum hvað svo sem
hann er að gera. Það má
enginn gera neitt nema hann
sé til staðar. Þannig er hann
í rauninni algjör bakverkur
fyrir leikstjóra. Leikstjórinn
fékk ekki að vera með við
klippinguna. Dwight sagðist
vilja vera með klipparanum
og engum öðrum.
Þannig sat ég með honum
þarna í fjóra sólarhringa
fyrst. Hann er mjög Ijúfur
maður þótt hann sé svona
kröfuharður. Hann hefur mik-
inn áhuga á íslandi og veit
töluvert um landið. Hann er
mikill áhugmaður um veð-
hlaupahesta og átti meira að
segja hest sem hann kallaði
„Sea Reykjavík" einhverra
hluta vegna. Þegar kom að
því að vinna næsta mynd-
band hafði umboðsmaður
hans samband við mig og
boðaði mig á skrifstofuna til
Dwights næsta dag þar sem
átti að klippa. Nú, ég mætti
þangað og þar var búið að
setja upp öll tæki og allt
klárt, en Dwight er annars
frægur fyrir það að mæta
aldrei á réttum tíma, hvar
sem hann er. Umboðsmað-
urinn kom til mín og sagði að
ég þyrfti að bíða, hann hlyti
að fara að koma. Svo hringdi
síminn og þar var Dwight á
línunni í einkaþotu yfir Kans-
as með Dennis Hopper og
Peter Fonda á leið á stærstu
veðreiðakeppni Bandaríkj-
anna en henni hafði hann
gleymt! Hann sagði mér því
bara að mæta í fyrramálið,
hann yrði kominn þangað í
tíma. Ég mætti svo aftur
daginn eftir og það leið og
beið og ekkert bólaði á
Dwight en þar sem ég hafði
kennt umboðsmanninum
Ólsen Ólsen sátum við og
spiluðum allan daginn.
Næsta dag mætti ég og enn
og aftur hófumst við handa
við Ólsen Ólsen og drukkum
bara bjór. Þrem dögum síðar
birtist svo Dwight í dyragætt-
inni eins og ekkert hefði
ískorist og vildi fara að byrja!
Á milli þess sem við vor-
um að'vinna spurði hann
mikið um ísland og fannst
auðheyrilega mikið til þess
koma hvað við erum fá. Það
var augljóst að hann var af-
skaplega vel lesinn og fróður
um margt. . . greinilega
maður með allt á hreinu.
Hins vegar sagði hann lítið
eða ekkert af sjálfum sér.