Vikan - 28.03.2000, Side 52
Texti: Guðjón Bergmann
Grasalækningar
Lækningaaðferðir sem
byggjast á jurtameð-
ferð og ráðgjöf um
mataræði og næring-
arefni eru meðal elstu lækn-
ingaaðferða sem þekkjast og
líklega þær aðferðir sem fólk á
auðveldast með að skilja.
Nánast öll menning-
arsamfélög eiga sér
langa grasalækninga-
hefð og í slíkum lækn-
ingum er jafnan notast
við staðbundna flóru.
Nútímalæknavísindi
byggjast að miklu leyti
á fræðum hinna fornu
grasalækna. Flest venju-
leg lyf sem framleidd eru af
lyfjafyrirtækjum innihalda eft-
irlíkingar náttúrulegra efna.
Virk efni úr ýmsum fornum
náttúrulyfjum eru uppistöðu-
þáttur í mörgum algengum nú-
tímalyfjum. Grasalækninga-
hefðin er sterkust í Norður-
Ameríku og Austurlöndum
fjær og þar hafa nútímagrasa-
lækningar fyrst og fremst þró-
ast.
Meðai elstu iiefða
Grasalækningar eru meðal
elstu lækningaaðferða. Þær
hafa þróast í gegnum tilraunir
og mistök auk þess sem miklar
upplýsingar hafa fengist í gegn-
um skoðun á atferli dýra. Peg-
ar um árið 3000 f.Kr. höfðu Eg-
yptar tekið saman skrá yfir
lækningajurtir og eiginleika
þeirra. Síðar gerðu Forn-
Grikkir hið sama. Hefðin barst
svo með Rómverjum til Norð-
ur-Evrópu þar sem grasalækn-
ingar þróuðust og mótuðust
undir áhrifum annarra menn-
ingarstrauma, þar á meðal ar-
abískra eftir að Arabar réðust
inn á Pýreneaskaga.
Ott blönduð iijátrú
Á miðöldum voru fræði
grasalækna oft blönduð hjátrú
en undirstaða þeirra var þó víð-
tækur skilningur á líkamanum
og áhrifum mismunandi grasa á
hann. Þegar ekki var Ijóst hvers
vegna tiltekin grös höfðu lækn-
ingamátt var gripið til sögulegra
52 Vikan
eða goðafræðilegra skýringa.
Pá var talið að skaplyndi og lík-
amsástand einstaklingsins
stjórnaðist af fjórum skapgerð-
areinkennum sem tengdust hin-
um fjórum líkamsvessum og
fólk væri annaðhvort glaðlynt,
daufgert, skapbrátt eða þung-
lynt, allt eftir því hvaða líkams-
vessi væri ráðandi. Grösin voru
talin hafa sín eigin
skapgerðareinkenni
og þeim var því beitt í
samræmi við þau ein-
kenni til að koma jafnvægi
á milli líkamsvessanna.
Menn trúðu því líka að
hver líkamshluti væri
undir stjórn ákveðins stjörnu-
merkis og hvert lækningagras
undir stjórn ákveðinnar reiki-
stjörnu.
Samsvarandi útlit
Aðrir trúðu á kenninguna um
samsvarandi útlit en samkvæmt
henni bar að nota þau grös til að
lækna sjúkdóm sem samsvör-
uðu einkennum hans í lögun
eða lit. Það var flókið mál að
mæla lyfjagjafir samkvæmt
þessari kenningu en þó varð
það heldur einfaldara eftir að
prentlistin var fundin upp.
Kaupa mátti kver um grasa-
lækningar þar sem þessar
flóknu kenningar voru útskýrð-
ar. Þau voru þaullesin og gengu
manna á milli og grasalækning-
ar þrifust öldum saman við hlið
viðtekinna hugmynda lækna-
vísindanna, sem voru í örri þró-
un. En eftir því sem læknavís-
indunum, sem byggja meðferð
fyrst og fremst á
lyfjagjöf og
skurðaðgerð-
um, óx fiskur
um hrygg
lögðust
grasalækn-
ingar af að
mestu.
Varist eftir-
likingar
Lyfjafram-
leiðendur
hafa reynt að
teljafólki trú um
að lyf þeirra, sem eru eftirlík-
ingar af virkum efnum grasa-
seyða, séu á einhvern hátt
áhrifaríkari en grösin sjálf.
Meðan fulltrúar lyfjaiðnaðarins
hafa kannað af áfergju tak-
markalausa lækningamögu-
leika jurta og grasa, hafa tals-
menn sama iðnaðar barist gegn
grasalækningum og lagt á sig
ómælt erfiði til að finna eitur-
efni í ýmsum grösum þótt slík
efni séu alveg meinlaus þegar
grasalyfin eru gefin í venjuleg-
um skömmtum.
Vaxandi áhyggjur af auka-
verkunum lyfja hafa knúið fólk
til þess að leita til grasalækna til
að fá náttúruleg lyf. Óléttar
konur, börn og fólk með þráláta
sjúkdóma sem hefð-
bundin lækna-
vísindi ráða
ekki við,svoog
fólk semhaldið
er ónæmis-
bælandi kvill-
um, hefur sér í
lagi notið góðs
af grasalyfjum. Jafnframt því
sem rannsóknir á virkum efn-
um í lækningagrösum eru í örri
sókn eru menn farnir að not-
færa sér forna heilsudrykki og
önnur gömul lækningaráð í vax-
andi mæli.
Að uerka og nota grös
Hver sem er getur búið til
áhrifarík grasalyf í eldhúsi sínu
en áhættan samfara því að
reyna að sjúkdómsgreina sjálf-
an sig er meiri en svo að nóglega
verði varað við henni. Allan
heilsufarsvanda á að bera
undir lærðan grasalækni
eða lærðan lækni.
Grös eru að vísu
náttúruleg en þau
eru einnig kröftug lyf
og í of stórum
skömmtum geta þau
verið eitruð. Eigi þau
að koma að fullu gagni
verður að vinna þau rétt.
Hér á eftir er nokkrum
aðferðum lýst.
Best er að gerate úr
heilum blómum með stilkum,
laufum og blómum því að virku
efnin leysast auðveldlega úr
þeim. Látið tilgreint magn
grasa í volgan tepott. Hellið
sjóðandi vatni yfir þau og látið
standa í 10 til 15 mínútur áður
en síað er. Slíkt te endist ekki
nema í nokkra klukkutíma.
Seyði
Trékenndir stilkar, rætur, fræ
og börkur eru best í seyði. Sax-
ið eða merjið grasið til að brjóta
niður virku efnin. Setjið til-
greint magn í pott og hellið
vatni svo fljóti yfir. Hleypið upp
suðu, lokið og látið malla í 10
til 15 mínútur. Síið og drekkið
heitt. Slíku seyði ætti að fleygja
eftir nokkra klukkutíma.
Tinktúra
Tinktúrur eru
mjög sterkar
blöndur áfengis og
grasa. Setjið saxað
eða þurrkað og
malað grasið í ílát
með loki og hellið vodka yfir.
Hlutfall grasa og vökva er 1 á
móti 5 að rúmmáli. Látið standa
á hlýjum stað í tvær vikur og
hristið tvisvar á dag. Síið í gegn-
um baðmullargrisju og vindið
vel. Geymist í flöskum úr
dökku gleri með þéttum tappa.
Bakstrar
Húð yfir bólgu eða sári dreg-
ur í sig virk efni úr bakstri úr
grasaseyðum og -soðum. Bleyt-
ið hreinan efnisbút í heitu
grasaseyði og leggið við svæðið.
Grautarbakstrar
Um er að ræða bakstur sem
inniheldur þykkan grasagraut.
Vefjið grisju um grös sem búið
er að nota í seyði eða te og legg-
ið við húðina þar sem eru bólg-
ur eða meiðsli. Leggið hitapoka
ofan á baksturinn til að halda
honum heitum.
Nánari upplýsingar er að
finna í fjölda bóka og blaða um
grasalækningar sem til eru á ís-
lensku. í grein Vikunnar var
stuðst við Heilsubók heimil-
anna (Vaka-Helgafell).