Menntamál - 01.12.1926, Side 6
20
MENTAMÁL
um starf, og c) skólaprófum. Galton, Cattell og Binet voru
brautryöjenclur á þessu sviöi sálarfræöinnar. Sir F. Galton
geröi i bók sinni: „Inquiries into Human Faculty“ (1883)
grein fyrir víöfangsefninu og setti, skömmu eftir aö bókin kom
út, á fót rannsóknarstofu í London, þar sem allir gátu fengiö
sig mælda í ýmisum andlegum og líkamlegum greinum. Frá
því um 1890 hafa ýmiskonar mælingapróf veriö gerð í Banda-
ríkjunum, og notuð allvíöa; er þaö einkum fyrir áhrif Cattells.
í Þýskalandi hafa þeir Kraepelin og Ebbinghaus haft forust-
una. Hinn þekti, franski sálarfræðingur Alfred Binet, lagði til
grundvallar samtalsform læknis og sjúklings, og útbjó ])aö
sem kalla mætti spurningakerfi (standardised interview), með
30 spurningum og viðfangsefnum. Þessi gáfna-mælikvarði var
endurbættur 1908, og skift eftir aldursþroska, og loks var
honum breytt 1911 í síðasta sinn. Mælikvarða þessum hefir
verið beitt í ýmsum myndum víða um lönd.
Um líkt leyti og Binet var að fullkomna hið vísindalega próf-
kerfi sitt, fóru ýmsir amerískir sálarfræðingar að leggja spurn-
ingapróf fyrir barnadeildir. Næsta sporið var að búa út fyrir-
miyndar spurningapróf, á l^orð við skrifleg viðfangsefni skól-
anna. Eitt af hinum fyrstu slíkum kerfum og jafnframt hinum
mikilsverðustu, var „hermannaprófið fyrra“, sem gert var 1917.
til að mæla nýliða í Bandaríkjahernum. Undir það próf gengu
um 2 miljónir manna; þúsund menn eða fleiri voru stundum
/
prófaðir í einu á sama stað.
Notk.un. Upp frá ])ví liefir gáfnaprófum mikið fjölgað,
ólík kerfi hafa verið búin til, til að ná margvíslegum tilgangi,
og reglurnar fyrir einkunnagjöfinni hafa mikið verið endur-
bættar. Prófum þessum er víða beitt, einkum í Bandaríkjun-
um, í þeim tilgangi að flokka betur skólabörnin, og við rann-
sóknir á hálfvitum og vandræðabörnum. Sömu aðferð og höfð
■er við gáfnafrófiii, er og farið að beita í öllum námsgreinum
skólanna. Að minsta kosti ein miljón slíkra prófa var háð yfir
„skólabörnum á árinu 1925 einu saman. Nokkrir hinir helztu