Menntamál - 01.08.1927, Qupperneq 6
102
MENTAMÁL
sem ekkert var inni nema grjót og' sleggja, og láta þá svo dúsa
þar, þangaiS til þeir tóku sleggjuna og fóru a?S mylja grjótiíS
sjer til afþreyingar. Einu sinni hurfu þar allir alifuglar;
voru þaíS mest endur, og fundust ekki fyr en sihar. þegar fariiS
var aö gera viiS tjörnina, þar sem þær höfiSu synt. Strákarnir
höfiSu þá náö öndunum, bundiö stein viö hvern ftigl og sökt
þeim svo í tjörnina. Einhverju sinni var þaiS, að strákur haföi
strokiiS. En þegar átti aiS taka hann og flytja i hæliiS aftur, þá
flýiSi hann alt hvaö af tók. Og heldur.en aö láta hlut sinn, kast-
aöi hann sjer fyrir járnbrautarlest. — Maöurinn vildi ekki viö
þetta fást og hafði sig á hurt án þess aö sækja um stöðuna.
Þaö veit aö visu enginn, sem ekki hefir reynt, hvaö ]taö er.
aö eiga viö þyílíkan lýð. En jjaö má telja vist, aö slík hæli
sjeu ekki á rjettri leið.
Jeg' skal nú lýsa nokkuð ööru hæli, sem er miklu mildara,
enda er þaö nýrra. Þessu hæli kyntist jeg sjálfur nokkuö. Þaö
er fyrir stráka úr Stokkhólmi og stendur fyrir utan bæinn, úti
í skerjunum. eitt sjer á fögrum stað. Og þó að í Stokkhólmi
sje upp undir hálfa miljón íl)úa, voru ekki nema 40 strákar í
þessu hæli. En þess ber aö geta, aö þeir allra verstu eru ekki
þar; þeir, sem ómögulegt er aö tæta viö meö nokkurnveginn
venjulegum heimilisháttum, eru látnir i haröari hæli. Þaö verö-
ur ekki umflúið. En öll hin strangari hæli eru raunar hrein
og bein fangelsi, þar sem unglingarnir eru eftir úrskurði, en ekki
venjulegum dómi. Þaö er ekki þar meö sagt, að í þessum hælum
sje minna reynt en í hinum til þess að betra unglingana og
gera úr þeirn nýta menn. Það eru einkum tvennskonar ungling-
ar, sem lenda í höröustu hælunum: þeir, sem eru svo langt
leiddir, aö sitja sig aldrei úr færi aö fremja ódæöi, og svo þeir,
sem eru svo þráir og ])verir, aö þeir hlaupast á brott úr hin-
um hælunum, svo aö aldrei má treysta ])einr eina stund nje
af þeim líta.
Þetta hæli í Stokkliólmi, sem jeg nú ætla að lýsa, mun vera
talið einna fremst í sinni röö um öll Norðurlönd og víöar. i
þetta hæli koma ekki aðrir strákar en þeir, sem ómögulegt hef-