Menntamál - 01.11.1944, Qupperneq 16
162
MENNTAMÁL
GUÐJÓN GUÐJÓNSSON:
Ríkisátgáfa námsbóka
Oft ber það við, þegar menn öðlast einhver langþráð
gæði, að þeim finnst þau ekki svara til vonanna, sem til
þeirra stóðu, enda hættir
þeim stundum til að vera
hillingakenndar.
í þann tíð, sem hafin
var ríkisútgáfa námsbóka,
hugðu flestir kennarar
gott til þeirrar nýbreytni,
enda hafði bókakostur sá,
sem barnafræðslan studd-
ist við, verið mjög í mol-
um og bókaþurrð tilfinn-
anleg. Á fyrstu árum Rík-
isútgáfunnar var mjög
bætt úr þessu, bæði með
því að láta prenta upp
pær bækur, sem skólarnir
höfðu notað að undan-
förnu, og taka saman nýjar, sem áður hafði vantað.
Tókst þannig að bæta úr bókaskortinum, sem hafði áður
háð mjög barnafræðslunni, og var það mikilsvert.
En þetta var aðeins undirbúningsstarf. Næst lá fyrir
að taka til endurskoðunar allar námsbækur barnaskól-
anna, bæði þær, sem notaðar höfðu verið alllengi að und-
anförnu, og hinar, sem gerðar höfðu verið í skyndi til
þess að fylla í auð og opin skörð. Mun öllum hafa verið