Menntamál - 01.05.1951, Page 4
50
MENNTAMÁL
egi 10 og um 55 frá Svíþjóð, þar á meðal nokkrir fulltrú-
ar og deildarstjórar í fræðslumálaskrifstofu sænska ríkis-
ins, margir námsstjórar og fræðslufulltrúar.
Fræðslumálastjórarnir voru:
Frá Danmörku: „statskonsulent“ Alfr. Andreasen.
Frá Finnlandi: „generaldirektör“ R. H. Oittinen.
Frá íslandi: Helgi Elíasson.
Frá Noregi: ,,ekspedisjonssjef“ E. Boyesen.
Frá Svíþjóð: „generaldirektör“ N. G. Rosén.
Fundir voru haldnir í Studentskárens hus í Gautaborg.
Þar eru rúmgóð húsakynni, og vel var fyrir öllu séð, til þess
að fundarstörf tefðust sem allra minnst.
Sænski fræðslumálastjórinn, G. Rosén, setti mót þetta
á tilsettum tíma. Hann bauð alla fundarmenn velkomna á
þennan fyrsta fund norrænna fræðslumálastjórnenda og
lét í ljós ánægju sænsku fræðslumálastjórnarinnar yfir því,
að öll Norðurlöndin skyldu hafa sent menn á fundinn.
Hann lagði áherzlu á það, að skólarnir yrðu að haga störf-
um sínum í samræmi við kröfur tímans og þróun á sviði
menningar og tækni. Kyrrstaða væri sama og afturför.
En, sagði Rosén, skóla- og uppeldismálin verða ekki leyst
farsællega með lögum, reglugerðum og fyrirmælum ein-
um saman, heldur er nauðsynlegt fyrir þá menn, sem
stjórna eiga framkvæmd þeirra, að koma saman og ræða
um lausn þeirra vandamála, er alltaf hljóta að koma á
daginn í sjálfu skóla- og uppeldisstarfinu. Þessi vandamál
mundu vera svipuð á öllum Norðurlöndum og væri því
gott og gagnlegt fyrir allar þessar þjóðir, að þeir menn,
sem helzt fjalla um skóla- og uppeldismál þeirra, hittist til
skrafs og ráðagerða. Þetta ætti líka að geta verið sterkur
þáttur í norrænni samvinnu og þó eigi sízt til framdráttar
góðu og hagkvæmu skólastarfi.
Góður rómur var gerður að ávarpsorðum sænska
fræðslumálastjórans. Síðan voru valdir fundarstjórar og
ritarar.