Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 6

Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 6
52 MENNTAMÁL og þar á ofan kemur svo aðalskóli (hovedskole) í 3 ár, og getur sá skóli ýmist verið í beinu sambandi við barna- skólann eða sjálfstæður skóli fyrir 2 eða fleiri skólahverfi. Skólaskylda er nú 7—8 ár í Danmörku. Hinn svonefndi „folkeskole" nær yfir barnaskólann (grundskolen) og miðskólana. Svo taka gagnfræðaskólar og menntaskólar við. Á síðari árum hefur verið komið á hjálpardeildum í mörgum skólum, og í mörgum kaupstöðum eru sérstakir hjálparskólar. f þessum deildum eða skólum eru börn, sem einhverra hluta vegna eiga ekki samleið með öðrum skóla- börnum. Sum eru þar skamman tíma, önnur lengur — eða jafnvel meðan þau eru skólaskyld. — Meðal þessara barna eru börn með sjóngalla, lesblindu, heyrnardeyfu og síðast en eigi sízt gáfnatreg börn. Sérfróðir kennarar og skólasálfræðingar annast kennslu þessara barna. Má í þessu sambandi geta þess, að Kaupmannahafnarbær mun nú standa einna fremst af höfuðborgum Norðurlanda á þessu sviði og hafa flesta skólasálfræðinga í þjónustu sinni. í Kaupmannahöfn hefur verið stofnaður allstór tilrauna- skóli fyrir börn, og einnig er þar tilraunaskóli fyrir fram- haldskennslu. Vænta danskir skólamenn sér mikils af skól- um þessum, enda eru sérfróðir og dugandi kennarar fengn- ir til þess að starfa við þá, og sálfræðingar eru þar að sjálfsögðu með í ráðum. Verið er að stofna hliðstæða skóla víðar í Danmörku. Meðal mestu vandamála í skólahaldi Dana er það, á hvern hátt skuli farið með próflausa miðskólann. Hann hefur ekki náð þeim tilgangi, sem honum var ætlaður, og fækkar þeim nemendum óðum, sem hann sækja. Danskir skólamenn leitast nú við að finna ráð, sem duga til lausn- ar þessu vandamáli, en hver þau ráð verða, er ekki séð enn sem komið er. Skipan nemenda í deildir eftir getu á orðið marga and- mælendur meðal danskra skólamanna. Það þykir ekki vera

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.