Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 8

Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 8
54 MENNTAMÁL að fara á nokkurra mánaða kennaranámskeið. Með fjölg- un kennaraskóla og fleiri aðgerðum er þess vænzt, að eftir 10 ár verði allar kennarastöður í barna- og unglingaskól- um skipaðar fólki með kennararéttindum. 1 framhalds- og sérskólum er enn meiri hörgull á sér- menntuðum kennurum, einkum í dreifbýlinu. Laun mennta- skóla- og kennaraskólakennara eru lág hjá launum iðnað- armanna o. fl., svo að vart er að búast við, að keppzt verði um kennarastöðurnar, nema launin hækki. Það er tilfinnanleg vöntun á skólahúsum. Fyrir stríð vantaði skólahús í 1200 skólahverfi — af um 6000 —, 129 skólar voru lagðir í rústir í styrjöldinni, og á Karelen, sem Rússar fengu, voru 637 skólahús. Allmörg skólahús hafa þegar verið byggð, 250—300 eru í smíðum og 400 í undir- búningi. Nú er tví- og þrísett í flestar kennslustofur. 1 sjálfu skólastarfinu er við sömu erfiðleika að etja í Finnlandi og annars staðar á Norðurlöndum. Keppt er að því að gera námið sem hagnýtast fyrir hvern einstakling og taka uppeldisvísindin í þjónustu skólastarfsins. I sambandi við erindið um íslenzka skólakerfið og að- steðjandi vandamál í sambandi við skólamálin hér á landi skal þess getið, að fundarmönnum þótti skólatíminn stutt- ur — einkum í sveitum og þorpum -— enda er árlegur starfstími skólanna langstytztur hjá okkur. Einnig þótti skipan skólanna athyglisverð og í sumu til fyrirmyndar. E. Boyesen, fræðslumálastjóri Norðmanna, hafði í mörg- um atriðum svipaða sögu að segja og finnski fræðslumála- stjórinn. Víða verður að tví- eða þrísetja í hverja skóla- stofu, það vantar kennara og skólahús. Um 500 skólar voru lagðir í rústir í stríðinu. Um 5 ára skeið útskrifuðust sárafáir kennarar. Barnafjöldinn eykst óðum, svo að hús- næðisþörfin er mjög mikil. Talið er, að byggja þurfi skóla fyrir 1,1 milljarð n. kr. Hlutur kennaranna í frelsisbaráttu Noregs er víðfræg-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.