Menntamál - 01.05.1951, Side 11

Menntamál - 01.05.1951, Side 11
menntamál 57 uppeldis- og skólamálum Norðurlanda. Er þá fyrst að nefna það, að skólarnir hjálpi hverjum nemanda til þess að öðlast þá menntun og fræðslu, sem hann er hæfastur til og samsvarar andlegum og líkamlegum þroska hans. Þess vegna er nú þegar víða horfið frá bekkjarkennslu í þeirri mynd, að allir nemendur bekkjarins skuli vera sam- ferða í námsgreinunum, hverri um sig. Hér á landi munu farkennararnir og kennarar við aðra fámenna skóla standa framarlega í þessum starfsháttum. Aðstaða þeirra gerir það nærri því óhjákvæmilegt. Er það kannske þess vegna, sem duglegir nemendur í strjálbýlinu standa svo furðan- lega vei á sporði dugandi nemendum í stóru skólunum? Allir fordæmdu ítroðslu og einstrengingsleg þekkingar- eða minnispróf. Ekki voru samt margir, sem sleppa vildu öllum prófum, heldur töldu nauðsynlegt að finna leiðir til prófunar, sem verið gætu sanngjarn og þarfur mæli- kvarði á hæfni og getu nemendanna. Var lögð áherzla á þá hjálp, sem uppeldisvísindin gætu í té látið á þessu sviði. Menn voru sammála um nauðsyn samstarfs skóla og heimila í uppeldis- og skólamálunum. Þessir aðilar væru samábyrgir um árangur skólastarfsins, en gætu ekki velt ábyrgðinni hvor á annan. Á Norðurlöndum virðist stefnt að því í stjórn fræðslu- málanna, að hún færist meir og meir frá ráðuneytunum til fræðslumálaskrifstofanna og héraðsstjórnanna. Yfir- stjórnin markar aðallínurnar, en nánari tilhögun er á ábyrgð þeirra, sem annast eiga framkvæmdirnar. Þetta kalla þeir ,,decentralisation“, og mun það vera hvort- tveggja, að hið gagnstæða, „centralisation“, mundi of- hlaða ráðuneytin kvabbi og störfum og þykja stofna e. t. v. um of til afskipta ríkisvaldsins á svipaðan hátt og í Þýzka- landi á dögum þjóðernissinna. Margt fleira bar á góma í sambandi við framanskráð erindi, bæði á fundum og í samtölum einstaklinga og smá- hópa, en eigi skal farið nánar út í það að sinni.

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.