Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 14

Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 14
60 MENNTAMÁL anura fylgja. Sá uppreisnarandi og mótþrói, sem venju- lega auðkennir hegðun þeirra, er að miklu leyti eðlilegur þáttur í þeirri baráttu, sem sérhver einstaklingur verður að heyja, leynt eða ljóst, fyrir sjálfstæði sínu. Árekstrar milli foreldra og barna á þessum aldursskeið- um eru óvenjumiklir og verða því harðari sem foreldrarnir eru ónærgætnari og skilingsminni á sálarlíf barnanna. Börnin eru óhlýðin, þau vilja ekki fara að annarra ráðum eða skipunum. Þau vilja ráða sér sjálf, en eru að sjálf- sögðu ekki þess megnug að sjá fótum sínum forráð. For- eldrar bregðast mjög misjafnlega við þessu vandamáli, og hættir þeim mjög til öfga. Sumir foreldrar krefjast skil- yrðislausrar hlýðni og telja nauðsynlegt að kenna börn- unum að hlýða, hvað sem það kostar. Aðrir láta börn sín því nær algerlega sjálfráð og telja sig gera það í nafni nútíma uppeldisfræði, enda er þægilegt að bera slíkt fyrir sig, þegar allt um þrýtur og bersýnilegt er, að börnin hafa náð undirtökunum. Kenningar uppeldisfræðinga nútím- ans eru hér ýmist túlkaðar ranglega eða menn hafa frem- ur léð eyru öfgastefnum en þeim, sem á traustari grund- velli eru byggðar. Við nánari athugun verður ljóst, að skilyrðislaus og blind hlýðni getur ekki verið markmið í sjálfu sér. Kraf- an um óskoraða hlýðni getur — ef unnt er að fram- íylgja henni — gert börnin að viljalausum verkfærum í höndum yfirboðara sinna eða augnaþjónum, sem öðlast aldrei heilsteypta skapgerð né trausta siðgæðisvitund. f því felst ekki, að hin frjálsa og glaða nútímaæska okkar þurfi ekki og hafi ekki þurft ,,að læra að hlýða“. Sú hlýðni, sem nauðsynlegt er að temja hverju barni, verður að eiga rætur í heilbrigðu tilfinningalífi, jákvæðri afstöðu til foreldra og umhverfisins og vilja til að vinna þau verk og temja sér þá háttsemi, sem talin er holl og æskileg hverju sinni. Það er engan veginn unnt að „kenna börnum að hlýða“

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.