Menntamál - 01.05.1951, Page 15

Menntamál - 01.05.1951, Page 15
menntamál 61 með einhverri sérstakri aðferð á sama hátt og unnt er að kenna börnum að lesa eða skrifa. Hlýðnin er ekki kunn- átta, heldur birtist í henni geðræn, félagsleg afstaða. Öll framkoma foreldra gagnvart börnunum og öll afskipti af þeim, ekki sízt hin geðrænu afskipti, efla eða veikja hverju sinni þá undirstöðu, sem hlýðnin byggist á. Hvorki er það vænlegt til heilla né árangurs að ætla að knýja börn til hlýðni með harðri hendi eða stífni. Miklu farsælla er að laða þau til að hlýða með ljúfu geði, en til þess að svo megi verða, er nauðsynlegt, að uppalandinn setji sig í spor barnanna, reyni að skilja sjálfræðisþörf þeirra og uppreisnarhug og láti þau sem minnst finna til þess, að aðrir haldi raunverulega í taumana og stjórni. Foreldrar ættu ekki að setja börnum sínum aðrar reglur en þær, sem unnt er að fylgja eftir, og sjá þá um að þeim sé framfylgt. Þeir ættu að sýna börnum sínum fyllstu nærgætni og haga orðum sínum þannig, að sjálfræðisþörf þeirra sé ekki mis- boðið. Til dæmis má benda á, að beiðni og vinsamleg til- mæli reynast miklu betur en beinar skipanir. Slíkur orða- lagsmunur getur skipt ótrúlega miklu máli. 1 beiðni og til- mælum felst nærgætni og virðing fyrir sjálfstæði barn- anna, en skipanir bera vott um hið gagnstæða og særa því og æsa upp til mótþróa og reiði. Ekki er þó ávallt unnt að koma í veg fyrir reiðiköst barna t. d. á fyrra þrjózkuskeiðinu. En framkoma foreldra gagnvart börnum í slíkum köstum getur haft mjög mótandi áhrif á tilfinningalíf þeirra og hátterni. Það er mjög algengt, að foreldrar ávíti börn sín harðlega fyrir óþekkt, hóti að gefa þau, setja þau á barnaheimili, eða beiti þau líkamlegri refsingu eða reki þau út með harðri hendi, einmitt meðan þau eru í geðæsingu. Óhætt er að fullyrða, að slík háttsemi fullorðna fólksins er hvorki vel fallin til geðverndar né til að örva börnin til hlýðni. Þegar foreldrarnir haga sér þannig, má segja, að hegðun þeirra sé á jafnlágu þroskastigi og hegðun barnanna. Varast ber

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.