Menntamál - 01.05.1951, Side 16

Menntamál - 01.05.1951, Side 16
62 MENNTAMÁL með öllu að bregðast við þrjózku barnanna með þrjózku. Slíkt getur valdið forherðingu þrjózkunnar og getur orðið til þess, að hún festist svo í fari þeirra, að hún verði ríkt skapgerðareinkenni fram á fullorðinsár, í stað þess að hverfa með jafneðlilegum hætti og hún kom, ef henni er tekið með skilningi og lipurð. Þegar barn fær þrjózku- eða reiðikast, er það ekki ein- ungis óþekkt, eins og mönnum er tamast að kalla það, heldur er það óhamingjusamt og öryggislaust. Aldrei þarfnast það ástúðar og hlýju fremur en þá. Enginn má skilja orð mín svo, að ég mæli með eftirlátsemi eða dekri. Það á ekki að láta undan duttlungum barnsins til þess að sefa það. Betra er að hjálpa barninu til að sjá, að hlýðnin er bezti kosturinn. Það gera foreldrar ekki með hótunum og hirtingum, þegar í óefni er komið og stífni hlaupin í börnin, heldur með því að standa við hlið þeirra, tala blíð- lega til þeirra, svo að þau finni, að þau eigi skjól og vernd hjá foreldrum sínum, jafnvel þegar þau eru viti sínu fjær af reiði. Þegar þeim er runnin reiðin, er fyrst unnt a& tala skynsamlega við þau um ágreiningsefnið. Vart verður lögð of mikil áherzla á þá staðreynd, að þegar börnin eru sem óástúðlegust sjálf, þarfnast þau mestrar ástúðar. Ástúð, samfara festu og samkvæmni í boði og banni stuðlar að því að vekja öryggiskennd með barninu og efla geðró þess bezt. Ein „aðferðin", sem fólk bregður fyrir sig til þess að kenna börnum að hlýða, er að hræða þau. Einu sinni voru þau hrædd með Grýlu og Leppalúða, en þar sem öll börn vita, að „nú er hún Grýla gamla dauð“, þýðir ekki lengur að hræða þau til hlýðni með henni. í stað Grýlu koma nú t. d. læknar og lögregluþjónar. Óneitanlega er handhægt að grípa til þess, að hræða barn með því að læknirinn komi, ef það hlýði ekki. En það fer svo um þessar sem aðrar fjarstæðar hótanir, að þær hætta að hrífa, áður en varir. En hræðslan, sem búið er að

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.