Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 20
66
MENNTAMÁL
skrifað um kennara, en 6 um verkstjóra. Auk þess hafa 8
af þessum 44 látið í ljós óskir um það, hverjum kostum
góður kennari skyldi vera búinn. Úr þessu hefur svo verið
unnið á þann hátt, að fyrst voru allar ritgerðirnar tölu-
settar, því næst var hver þeirra lesin vandlega yfir og
skrifuð upp jafnóðum á sérstakt blað þau atriði, sem talin
voru vera kostir kennarans, og strik ásamt númeri ritgerð-
arinnar sett fyrir aftan. — Margir hafa, sem að líkum læt-
ur, talið upp sama kostinn, og ef hann hefur verið skrifaður
áður, var bætt við einu striki í hvert sinn og hann kom fyrir
að nýju ásamt númeri ritgerðarinnar. Með þessu móti er
alltaf hægt að sjá, úr hvaða ritgerð hvert atriði er tekið
og komið í veg fyrir að merkt sé oftar en einu sinni við
hvert atriði hjá sama nemanda, sem lýst hefur fleiri en ein-
um kennara. Þannig hefur fengizt fram tölulegt yfirlit yfir
dóma manna um kosti kennarans og hlutföllin milli þeirra.
Við ritgerðir um kosti verkstjóra hefur verið farið eins að,
en þær hafðar sér. Sömuleiðis hefur öllum óskum verið
haldið sér.
Þar sem frásögn þessi var algerlega frjáls innan þeirra
takmarka, er áður var getið, þá hafa nemendur sett fram
hið jákvæða í fari kennarans eða kosti hans með mjög
margvíslegu móti og í ótal blæbrigðum. Kosta kennarans er
getið 228 sinnum af 44 nemendum. Ýmsir nemendur taka
eðlilega fram sömu kosti, eins og áður er getið, en alls
taldist til, að greind væru 95 mismunandi atriði, er til
kosta eru talin. Af þessum atriðafjölda leiðir, að erfitt er
að gera sér ljósa grein fyrir þeim eða fá glögga sýn yfir
þau án þess að raða þeim saman.
Að sumu leyti er þó dálítið erfitt að raða þessu í hóflega
marga flokka, en þó má telja, að kostirnir taki í höfuðatrið-
um til:
1. Skapgerðareiginda kennarans.
2. Beinna jákvæðra áhrifa kennarans á skapgerð og
áhuga nemenda.