Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 21
menntamál
67
3. Jákvæðs félagslegs samneytis kennara við nemendur.
4. Kennsluaðferða og kennslugreina.
Ekki hefur verið gerð nein nánari flokkun á óskalistan-
um um kosti kennara né listanum um kosti verkstjóra, enda
stóðu aðeins fáir nemendur að þeim. Það skal tekið fram,
að við þessa flokka var þess gætt, að sama atriðið kæmi
eigi oftar en einu sinni frá sama nemanda, þótt hann hafi
nefnt það oftar undir öðru nafni. Endurtekningin gefur
hins vegar _ nokkra bendingu um áherzluna, sem það er
lögð, og verður því heildartalan látin fylgja með innan
sviga.
Ekki hefur verið komizt hjá því að sleppa nokkrum atrið-
um, sem ekki hefur verið hægt að flokka undir þessa
höfuðflokka, og eru þau alls 15 og hafa hlotið 1—2 atkv.,
en eitt 4 atkv.
Heildarniðurstöðurnar verða þá sem hér segir:
Kostir: Tala atkv.
I. Skapgerðareigindir kennarans:
a. Geðprúður, þolinmóður, þrautseigur o.þ.h. 31 (55)
b. Stjórnsamur og reglusamur............. 23 (31)
c. Réttlátur............................. 13 (19)
II. Bein jálcvæð áhrif kennarans á skapgerð nemenda:
a. Á áhuga og metnað .................... 17 (25)
b. Á skapgerð............................ 15 (18)
III. Félagslegt samneyti (í leikjum, gönguferðum
og fleira)............................... 20 (26)
IV. Kennsluaðferðir og kennslugreinar:
1. Kennsluaðferðir.
a. Góðar útskýringar .................. 8
b. Vinnubókagerð ..................... 4
2. Kennslugreinar.
a. Söngur ............................. 5 (6)
3. Sögur.
a. Kennari fer með sögur (og kvæði) .. 11