Menntamál - 01.05.1951, Síða 22

Menntamál - 01.05.1951, Síða 22
68 MENNTAMÁL II. Það er áreiðanlega engin hending, að einmitt þessir kost- ir, sem niðurstöðurnar sýna, skuli álitnir þýðingarmestir fyrir kennarann né heldur sú röð, sem þeir koma fram í. Þessir kostir — eða einhverjir þeirra a. m. k. — eru tví- mælalaust nauðsynlegir hverjum kennara. En vitneskjan um það eih saman gerir ekkert gagn, ef henni er ekki fylgt eftir. Nú verður fjallað um suma þessa kosti nokkru nánar, og verður fyrst vikið að geðprýðinni. Þeim kennara, sem getur aflað sér ástar og virðingar nemenda sinna, er tryggður mikill árangur í starfi sínu. Einstaka menn eru gæddir svo miklum persónuleika, eins og það er kallað, að ósjálfrátt bera allir virðingu fyrir þeim, jafnvel þótt þeir hafi ýmsa galla. Sumir þeir nemendur, sem talið hafa þetta til kosta kennarans, segja ekkert nánar af hverju virðingin var sprottin. Aðrir telja fram ýmsa góða kosti og ekki hvað sízt prúðmennsku og skapstillingu. Nú verða tekin nokkur dæmi og lýsingar frá nemendum varðandi þetta. Piltur skrifar: „Framkoma lxans öll (þ. e. kennarans), hvort heldur var í kennslustund eða annars staðar, var þannig, að undantekningar- laust báru allir krakkarnir takmarkalausa virðingu fyrir honurn. í kennslu var hann aldrei mjög strangur, en hafði þó mjög góðan aga. Kennsla hans náði jafnt til allra, engan setti hann útundan. Fram- koma hans var þannig, að aldrei sá ég hann reiðast. í þess stað var hann mjög kátur og hló mikið og skemmtilega, enda var hlátur hans afar smitandi. Oft og tíðum brá hann sér með okkur krökkunum út í frímínútum. Fórum við þá ýmist í snjókast, handknattleik eða smá gönguferðir. Upp frá þessu lief ég oft leitað til þessa manns." Nr. 29. Stúlka skrifar: „Ég man, hvað mér fannst kennaranum mínum ganga vel að kenna okkur, og hvað hann var alltaf ánægður, þegar hann var að kenna. Hann var þess vegna alltaf, að mér fannst, í góðu skapi og lifandi við kennsluna. Hann var alltaf alúðlegur og góður og reiddist örsjaldan, svo að við bárum meiri virðingu fyrir honunt fyrir það.‘‘ Nr. 38. Piltur skrifar um kennara við unglingaskóla: „Hinir mest áberandi eiginleikar hans við kennslu voru stöðug glaðværð og gamansemi,

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.