Menntamál - 01.05.1951, Síða 23

Menntamál - 01.05.1951, Síða 23
menntamál 69 sem hafði mjög góð áhrif á námsárangur nemenda hans. Hann var einnig sérstaklega þolinmóður að útskýra ýmis flókin atriði og gætti þess vel, að allir fylgdust með því, sem verið var að útskýra. Hann hafði mjög góðan aga í bekknum þrátt fyrir það, að hann beitti ekki strangleika. En hann var ákveðinn í framkomu, og öllurn nemendum hans undantekningarlaust mun hafa þótt vænt um liann og talið hann sinn bezta kennara.“ Nr. 18. Af dæmum þessum er Ijóst, að talað er um fleiri kosti en geðprýði og þá einkum stjórnsemi, og er það eðlilegt, þar sem þetta fylgist að hjá þessum kennurum. En hitt kemur vel fram, hve létt lund og skapstilling hefur mikil og góð áhrif á nemendurna. III. Agi og reglusemi eru mjög þýðingarmikil atriði í skóla. Nægir að benda á það, að störf bekkjarins í heild og þar nieð námsárangurinn að miklu leyti er algerlega undir stjórn kennarans kominn. En bezt er sú stjórn, er fer fram eðlilega og hávaðalaust. Skammir, refsingar og hótanir koma að næsta litlu gagni, og oft virðast þær beinlínis hafa áhrif í gagnstæða átt. Auk þess finnst flestum slíkt auðmýkjandi, jafnvel þótt þeir hafi unnið til þess. Dæmi og lýsingar úr ritgerð- unum lýsa aðferðum ýmissa góðra kennara. Piltur skrifar: „Kennsluaðferð og viðmót kennarans var þannig, að mér fór að þykja vænt um hann og ég tók að bera virðingu fyrir honum. Af því leiddi svo, að ég fékk áhuga á náminu. Við nemendur hans hlýddum honum i einu og öllu, og var það meira af virðingu en ótta, og aldrei þurfti liann að refsa neinum fyrir óhlýðni." Nr. 3. Piltur skrifar: „Mér fannst kennarinn liafa sérstakt vald yfir okk- ur, og var það fyrir sambland ótta og virðingar. Óttinn var þó aðeins við ofanígjöf. Okkur þótti fyrir því, ef hann setti ofan í við okkur, því að við treystum dómgreind lians og ávítuðum sjálf okkur, ef út af bar.“ Nr. 34. ■ Stúlka skrifar: „Kennarinn setti okkur alltaf mikið fyrir að læra, og við lærðum mikið. Ég hef aldrei getað gert mér grein fyrir því, hvernig hann fékk okkur til að lesa svo vel íyrir tímana, þennan hóp, sem veturinn áður var ómögulegt að fá til að lesa. Við vorum alltaf

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.