Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 24

Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 24
70 MENNTAMÁL viss um, að ekki væri hægt að svindla á prófum, hvorki vorprófum né öðrum. Hann myndi verða strangur, en réttlátur." Nr. 11. Stúlka skrifar: „í tímum hjá þessum kennara var alltaf kyrrð, þó að allt væri á fleygiferð í öðrum tímum. Hann var mjög strangur, en þó ekki vondur, og mér líkaði það vel. Hann gætti þess, að við læs- um ekki af bókinni, þegar liann hlýddi okkur yfir, og þá var ekki um annað að ræða en lesa vel, ef maður vildi ekki standa á gati. Eitt var jrað, sem ég lield að liafi verið aðalorsök þess, hve vel mér féll við hann, það var, hve réttlátur og sanngjarn liann var alltaf við okkur.“ Nr. 25. Piltur skrifar: „Sérstöku atviki, sem skeði, þegar ég var í 11 ára bekk, gleymi ég aldrei. Það hafði komið nýr piltur í bekkinn, og kom okkur illa saman. Lentum við í áflogum í skólaportinu og lauk þeim með því, að ég skellti lionum í steinlagt portið. Hlaut hann sár á liöfði og var borinn í burtu til skólalæknisins. Þetta þóttu náttúrlega miklar fréttir, og ég var óttasleginn. 1 næsta tíma var kristinfræði. Ég var ekki skammaður, en kennarinn minnti á orðin: „Það, sem þér viljið að mennirnir geri yður, það skuluð þér og þeim gera.“ Eftir þetta lenti ég minna í deilum, en minntist oft orðanna." Nr. 26. Það skal tekið fram, að sú stjórn og sá strangleiki, sem hér hefur verið lýst, mun fremur eiga við börn í eldri deildum barnaskólans, en síður við yngri börn, sem þurfa miklu meiri mildi og gagngerðari aðstoðar kennarans. Piltur skrifar: „A var duglegur kennari og stjórnsamur. Hann hafði þau álirif á okkur, að við bárum virðingu fyrir honum. En mest já- kvæð áhrif tel ég hann hafa liaft á okkur í sambandi við hegðun og háttvísi í framkomu. Hann var alltaf snyrtilegur til fara, virðulegur og ákveðinn í framkomu. Við fórum að reyna að líkja eftir honum, vanda framkomu okkar betur og greiða okkur betur o. s. frv.“ Nr. 17. Piltur skrifar: „Móti feimninni vann kennarinn með því að koma inn hjá okkur nokkru sjálfstrausti. Það gekk að vísu misjafnlega fljótt, eftir því livernig hver og einn nemandi var að upplagi, en hafði þó mikil og góð áhrif á heildina, að mínum dómi. Þegar veður var gott lék hann sér stundum með okkur og gekk þá allt skipulega og árekstralaust, svo að allir voru ánægðir með sinn hlut. Stöku sinnum fór hann með okkur í gönguferð eða á skauta. Endurminningar slíkra ferða gáfu okkur skemmtilegt umtalsefni og yfirleitt hollt umtalsefni um leið. Ég sé aðeins kosti, sem slík smáferðalög hafa í för með sér, og því álít ég, að ætti að tíðka þau og segja nemendunum frá einu og öðru á leiðinni og skýra og leiðbeina um ýmis atvik, sem fyrir koma í ferðalaginu." Nr. 24.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.