Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 26

Menntamál - 01.05.1951, Blaðsíða 26
72 MENNTAMÁL ast lítill. Kennarinn ætti því alltaf að setja námið í sam- band við áhugaefni barnanna, að svo miklu leyti sem unnt er og glæða áhuga þeirra á allan hátt. Það má gera með mörgu móti t. d. með því að vekja metnað þeirra og láta þau keppast um að standa sig sem bezt. Einnig verður að beita þeirri kennsluaðferð, sem er skemmtileg, og má í því sambandi nefna vinnubóka- og kortagerð, sem ýmsir telja sig hafa haft gagn af. Ekki er það óalgengt, að dálæti á kennaranum færist beinlínis yfir á námsgreinina, sem hann kennir. Piltur skrifar: „Fyrstu kynni mín af landafræði voru ekki sérlega góð. Bæði kennarinn og þó einkum námsgreinin voru hundleiðinleg. Þannig leið allur fyrsti veturinn minn við landafræðinám. Næsta vet- ur fékk ég nýjan kennara. Áður en langt um leið, lét hann okkur hefja vinnubókargerð. Mér þótti alltaf gaman að teikna, þegar ég var strákur, og nú opnaðist nýr lieimur fyrir mér. Þegar ég hafði lokið lexíu hvers dags, fór ég að hugsa um, livernig ég gæti dregið efnið saman í örfáar setningar. Ekki ósjaldan las ég aftur yfir, þegar mér fannst ég ekki muna nógu vel eða gat ekki komið setningunum nógu vel saman. Alltaf síðan Iief ég liaft eldlegan áhuga á þessari náms- grein. Ég lærði að meta þessar leiðbeiningar kennarans, og lengi mun ég vera honum þakklátur fyrir." Nr. 28. Stúlka skrifar: „Það fyrsta, scm ég tel kennaranum minum lil gild- is, er hinn einlægi áhugi, sem hann sýndi í starfi sínu. Við vorum lians metnaðarmál, enda taldi liann ckki eftir sér aukavinnu i okkar þágu. Stundum hafði hann kennsluna í eins konar leikformi, og var lagni Itans einstæð, hvað það snerti, að námið yrði ekki einhæft og vanabundið, svo að jafnvel reikningur varð stundum skemmtilegur hjá honum. í teikningu fengum við aldrei neinn sérkennara, og varð það okkur til happs að mínum dómi. Við vorum látin gera vinnu- bækur í öllum námsgreinum. Þær innihéldu ritgerðir og teikningar viðvíkjandi efninu. Einnig unnum við að stórum kortum, einkum úr landafærði og náttúrufræði. Ég bjó til mörg slík. Eitt tók ég fram yfir önnur, en það var kort af Islandi og íslenzkar villijurtir teiknaðar á þá landshluta, sem þær uxu í. Nefndi ég þetta kort „Flóru íslands“.“ Nr. 9. Piltur skrifar: „Ég á ennþá vinnubók frá barnaskólaárunum mín- um. Þegar ég lít á þessa bók, þá sé ég um leið áliuga og skyldurækni kennarans. í bók Jressari er fjöldi línurita um lönd, borgir, fjöll, vötn, ár, jökla o. m. fl. Þar eru einnig æviágrip ýmissa forvígismanna, allt

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.