Menntamál - 01.05.1951, Page 29

Menntamál - 01.05.1951, Page 29
menntamál 75 er seinasti liður danska verknámsins og er kennd við fá- eina danska skóla, helzt í 4. bekk, en flestir danskir skólar hafa enga málmsmíði enn þá, en hugur stendur til, að svo verði. Kerfi Axels Mikkelsen gerir ráð fyrir hópkennslu, en tiltölulega lítilli einstaklingskennslu. Samkvæmt því er gert ráð fyrir 36 nemendum í kennslustund og er alls stað- ar kennt heilum bekkjum í einu. Þetta atriði auðveldar mjög stundaskrárgerð, þar sem auðvelt er að setja handa- vinnu hvar sem er í tímaröðina hjá hverjum bekk, og hve- nær sem er að deginum. — Skipulag þessa kerfis er lang- samlega fastast mótað af öllum smíðakennslukerfum Norð- urlanda. Kennslan er byggð upp frá meðferð áhalda, minna frá síauknum tæknilegum þunga smíðanna, þó gætir þeirr- ar hliðarinnar að sjálfsögðu nokkuð. — Venjan er þessi: Fyrsta árið er sögin aðalvei'kfærið og að heita má hið eina. Er þá kennd alls konar sögun, þversögun, langsögun, ská- sögun o. s. frv. Að árinu loknu eiga nemendur að hafa lært að saga. — Annað árið er hefillinn aðaláhaldið, þá er kennt að hefla. Þá má smíða hluti, sem bæði þarf að beita sögun og heflun við, því að nemendur hafa þá lært að saga. Eftir fyrstu tvö árin eiga nemendur að kunna að saga og hefla, og Danir segja: „Sá, sem kann að saga og hefla, kann að smíða.“ Þannig gengur kennslan, að á hverjum tíma er lögð sérstök rækt við að kenna meðferð einhvers sérstaks verkfæris. — Mikið úrval af teikning- um er í hverri smíðastofu, og hver fyrirmynd er ætluð sér- stöku stigi í æfingarkerfinu. Þannig er til flokkur fyrir- Wynda fyrir sögunaræfingar, annar fyrir heflun, þriðji bjúgheflun o. s. frv. Þegar nemendur hafa lært meðferð verkfæranna, er horfið meira að samsettum smíðaæfingum. Danskir handavinnumunir eru ekki eins áferðarfallegir °g handavinnumunir okkar íslendinga, Norðmanna og Svía. Stafar það af því, að pússun með sandpappír, lökk- Un eða önnur fegrun yfirborðsins er ekki tekin fyrir, fyrr en seint í námskerfinu. — Vinnubók er áskilin. Áður en

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.