Menntamál - 01.05.1951, Page 33

Menntamál - 01.05.1951, Page 33
menntamál 79 fara með nál, víða er þeim kennt að prjóna og á nokkrum stöðum að hekla, en þessi kennsla fer aðallega fram í barna- skólunum. — Hússtjórn er drengjum aftur á móti kennd bæði í barna- og framhaldsskólum. Handavinna stúlkna. Ekki er neinn höfuðmunur á handavinnukennslu stúlkna á Norðurlöndunum þremur, kerfín eru mjög lík, en kennslan hefur þó sinn sérstæða svip í hverju landi. Kennslan í hverju landi ber blæ af skólahaldi landsins, og einnig af verknámskerfunum, sem ég lýsti hér að framan, t. d. er í Danmörk kennt heilum bekkjum, allt að 36 nemendum í einu, og hin fræðilegu atriði eru kennd í hópkennslu, en í Noregi og Svíþjóð er kennt hálfum bekkjum í einu, og lítið eða víðast ekkert beitt hópkennslu. — Munurinn á handavinnukennslu stúlkna í þessum löndum er ekki svo mikill, að ég sjái ástæðu til að lengja mál mitt með því að ræða handavinnu- kennsluna í hverju landinu fyrir sig. — Hinn almenni til- gangur handavinnukennslunnar er að gera nemendurna sem mest sjálfbjarga um að sjá um klæði sín, og að þeim, er síðar verða húsmæður, verði þetta nám að sem mestu gagni. I þessu skyni eru nemendur látnir sem mest iðka handavinnu. Fegurðarsmekkur er þjálfaður, einnig er þeim kennt um litaval og samsetningu lita. Nemendum er kennd mynzturteiknun. Stundum búa nemendur sjálfir til mynztrin. Og í norskum framhaldsskólum er ætlazt til þess, að nemendur búi til mynztur, og er þeim kennt hvernig mynztrin skulu sett, svo að vel fari og allt efni hagnýtist sem bezt. — Vinnubækur eru almennt notaðar. Hver nemandi hefur sína vinnubók og skrifar í hana það, sem kennslukonan leggur til grundvallar í kennslunni, einnig setja stúlkurnar alls konar sýnishorn inn í bókina og skrifa skýringar við, þær teikna mynztrin í bókina, klippa snið og líma í hana. f Svíþjóð virðist mér mest vandað til handavinnusala, enda var svo að heyra, að þeir væru að nokkru leyti teknir

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.