Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 37

Menntamál - 01.05.1951, Qupperneq 37
menntamál 83 Stjórn BSRB hafði þegar í janúar ritað ríkisstjórn og bent á nauðsyn þess, að frekari verðbólga yrði stöðvuð, ella hlyti samtökin að krefjast fullrar vísitölugreiðslu. — Er svo varð ekki, en gjaldeyrisskattur þess í stað settur á frílistavörur, er margar hverjar eru nauðsynjavarning- ur, gerði stjórn bandalagsins svofellda ályktun 19. marz s. 1. og sendi ríkisstjórninni: „Með tilvísun til samþykktar, er gerð var á fundi stjórn- ar BSRB þann 8. janúar s. 1. og afhent var hæstvirtri ríkis- stjórn, hefur stjórn bandalagsins gert eftirfarandi álykt- un á fundi sínum 19. marz 1951: Frá því um áramót hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 3 til 5 stig, og munu meiri hækkanir í vændum bæði sökum verðhækkana erlendis svo og ráðstafana, er gerðar hafa verið bátaútveginum til hjálpar. Stjórn BSRB telur, að kjör meginþorra launafólks séu nú slík, að frekari kjararýrnun beri að afstýra eftir öll- um hugsanlegum leiðum. Fyrir því beinir bandalagsstjórn- in þeim tilmælum til hæstvirtrar ríkisstjórnar, að hún láti nú þegar fara fram sérfróða athugun á því, hvaða leiðir kynnu að vera tiltækilegar til að tryggja hlutfall milli launa og raunverulegs framfærslukostnaðar, er ekki sé óhagstæðara en var um síðast liðin áramót. Fulltrúar laun- þegasamtakanna eigi þess kost að fylgjast með niðurstöð- um þeirra athuguna jafnóðum og þær liggja fyrir, og verði þannig leitazt við að finna grundvöll til viðunandi úrlausn- ar kjaramálum launafólks. Að öðru leyti ítrekar stjórn BSRB samþykkt sína frá 8. janúar s. 1. og samþykktir 13. þings bandalagsins um áýrtíðarmál. Leyfum vér oss í því sambandi að taka upp þær sam- bykktir þingsins, sem snerta sérstaklega endurskoðun framfærsluvísitölu og launagreiðslur samkvæmt henni. „13. þing BSRB skorar á alþingi og ríkisstjórn að beita sér fyrir því að hafizt verði nú þegar handa um endur-

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.