Menntamál - 01.05.1951, Síða 38
84
MENNTAMÁL
skoðun vísitölu framfærslukostnaðar, þannig að hún sýni
framvegis sem réttasta mynd af þeim breytingum, sem
á raunverulegum framfærslukostnaði verða.“
,,13. þing BSRB væntir þess, að ríkisstjórn og Alþingi
geri nauðsynlegar ráðstafanir til heftingar verðbólgunni
eftir öllum hugsanlegum leiðum. Séu slíkar ráðstafanir
ekki gerðar, lýsir 13. þing BSRB yfir því, að það krefst
mánaðarlegra launahækkana til handa opinberum starfs-
mönnum til samræmis við hækkun á vísitölu framfærslu-
kostnaðar“.“
Samtök opinberra starfsmanna stóðu að hátíðahöldum
og opinberum fundum með verkalýðsfélögunum hér í höf-
uðstaðnum 1. maí, en aðalkröfur dagsins voru:
Full greiðsla samkvæmt framfærsluvísitölu. Stöðvun
frekari verðbólgu og eining launþegasamtakanna.
Eins og áður segir, hafa nú meginkröfur verkalýðs-
félaganna um fullar vísitölugreiðslur á verkamannalaun
verið viðurkenndar.
Ákvarðanir um fulla vísitöluuppbót til handa opinber-
um starfsmönnum eftir sömu reglum, er gilda um launþega,
er taka laun á frjálsum markaði, eru nú til yfirvegunar
hjá ríkisstjórninni, og mun ekki dregið í efa, að jákvæðar
ráðstafanir í þessu efni verði gerðar nú á næstunni.
Kennaranámsskeið.
S. í. B. gengst fyrir kennaranámsskeiði í Reykjavík fyrra hluta júní-
mánaðar. Aðalviðfangsefni verður vinnubókagerð, handavinnukennsla
drengja og föndur. Leiðbeincndur í vinnubókagerð verða Jónas B.
Jónsson og Guðmundur Pálsson, í liandavinnu drcngja Gunnar
Klængsson, en óráðið er enn (26. maí), hver leiðbeinir um föndrið.
Enn fremur gengst Landsamband framhaldsskólakcnnara fyrir
námsskeiði um sömti mundir í íslenzku, dönsku og söng. Leiðbein-
endur í islenzku verða Sveinbjörn Sigurjónsson og I.árus Pálsson, í
dönsku F.lse Hansen og Martin Larsen og í söng I-Teinz Edelstein og
Róbert A. Ottósson.