Menntamál - 01.12.1953, Side 3
MENNTAMÁL
XXVI. 4.
NÓV.—DES.
1953
HELGl ELÍASSON frœðslumálastjóri:
LJr Bandaríkjaför 1953
1. Aðdragandi.
Það mun hafa verið snemma árs 1951, sem dr. Nils W.
Ohlson, forstjóri Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna í
Revkjavík, kom til mín og tjáði mér, að ég ætti kost á
fjögurra mánaða dvöl í
Bandaríkjunum til þess að
kynnast þar skóla- og upp-
eldismálum. Ég mátti ráða
því, hvaða þætti þessara
mála ég kynnti mér og
hvar. Ef ég vildi sinna
þessu, skyldi ég koma með
óskalista, sem komið mundi
verða á framfæri við yfir-
stjórn fræðslumála í Was-
hington, og mundi hún svo
gera drög að áætlun um
dvöl mína. Ekki yrði geng-
ið frá ferðaáætlun til fulls,
fyrr en ég kæmi vestur.
Fargjöld milli landa og
staða mundi gestgjafinn
greiða svo og 10 dollara á dag fyrir dvalarkostnaði.
Ég hafði aldrei komið til Ameríku.
Þetta þótti mér því girnilegt boð og höfðinglegt, en ýms-
ar ástæður ollu því, að ég gat eigi tekið því, nema förin
Helgi Eliasson.