Menntamál - 01.12.1953, Blaðsíða 10
132
MENNTAMÁL
vention Hall“. Nöfn þeirra eru skammstöfuð þannig:
AASA. og NEA. Fyrr nefndu samtökin — American
Association of School Administrators — eru aðallega fyrir
stjórnendur skóla, allt frá barnaskólum upp í háskóla,
skólastjóra, námsstjóra, fræðslumálastjóra og aðra, er
að stjórn skóla- og uppeldismála vinna. NEA — National
Education Association — er víðfeðmari félagsskapur
kennara og uppalenda, en milli þessara félagasambanda
er mjög náið samstarf.
Þingsetning fór fram daginn eftir að ég kom til
Atlantic City (á sunnudag), og var hún mjög hátíðleg. I
hálftíma, meðan 17000 manns voru að safnast í fundar-
salinn, voru spiluð sígild tónverk á feiknastórt rafmagns-
orgel. Að loknum orgelleik og söng var flutt stutt fyrir-
bæn. Þá var þingið sett með stuttu ávarpi, og síðan flutti
prestlærður maður, Douglas Horton, alvöruþrungna ræðu,
er hann nefndi: „Frá þrældómi til frelsis”. Fjallaði ræð-
an aðallega um það, að ekki væri nóg að vera frjáls að
nafninu til heldur yrði fólk — og þá eigi sízt það, er að
uppeldis- og skólamálum starfar — að sýna það í verki,
að frelsið væri dýrmætustu mannréttindin og þau vand-
meðförnustu. Benti ræðumaður í því sambandi á söguna
um glataða soninn.
Aðrir starfsdagar þingsins hófust með svipuðum hætti
og sá fyrsti, þ. e. með orgelslætti (frá kl. 8.30—9), þá
söng og fyrirbæn — og var þess gætt, að ekki væri mis-
skipt milli kirkjudeilda — og síðan fyrirlestrar einn eða
fleiri eða umræður um skóla- og uppeldismál. Að loknu
hádegishléi var haldið áfram fyrirlestrum eða umræð-
um til kl. 17—18, en á kvöldin voru ýmist hljómleikar,
leiksýningar eða annað til hátíðabrigða, og sáu skólar
oft um þann þáttinn — sumir þeirra langt að.
Allir fyrirlestrar og kvöldsýningar fóru fram í aðal-
salnum, en umræðufundir voru á mörgum stöðum í húsinu.
Aðalumræðuefni þingsins var að fjalla um uppeldið í