Menntamál - 01.12.1953, Side 23
MENNTAMÁL
145
það, að á sem flestum heimilum sé einhver settur til að
halda börnum og unglingum til náms.
Þótt þetta, að líkindum, gengi ekki allt eins og til var
ætlazt, er hitt þó engu að síður vafalaust, að þessi vakn-
ing, sem Framfarafélagið hratt af stað, hafði veruleg
áhrif í framfara- og menningarátt.
Á Akureyri var ekki til slíkra samtaka stofnað fyrr
en í ársbyrjun 1879, og höfðu þeir Eggert Laxdal og
Friðbjörn Steinsson forgöngu um það. Var tilgangurinn:
„að efla menntun og verklegar framfarir Akureyrarbúa",
og virðist mikill hugur í mönnum. Skorar Akureyrarfé-
lagið þetta ár á menn í öllum sveitum sýslunnar að koma
á hjá sér slíkum félagsskap. Á Akureyri beitti félagið sér
fyrir stofnun svonefnds Sunnudagaskóla. Var hann eink-
um ætlaður ungmennum, sem ekki höfðu tíma til að
sinna skólanámi virka daga. Var skólagjaldið aðeins 2
krónur yfir allan kennslutímann, enda kenndu menn kaup-
laust. Þennan vetur stóð kennslan yfir frá kl. 4—6 síð-
degis hvern sunnudag, og eru námsgreinar: reikningur,
réttritun og danska. — Ekki er nú fyllilega ljóst hve
lengi skóli þessi starfaði. ...
Dr. Guðni Jónsson.
Guðni Jónsson, skólastjóri Gagnfræðaskóla Vesturbæjar í Reykja-
vík, varði doktorsritgerð við Háskóla íslands 12. des. s. 1. Nefnist rit-
gerðin Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi.