Menntamál - 01.12.1953, Síða 24
146
MENNTAMÁL
Dr. Bjarni ASalbjarnarson látinn
1. des. s. 1. lézt í Hafnar-
firði dr. Bjarni Aðalbjarn-
arson, kennari við Flens-
borgarskóla. Hann var
fæddur 6. des. 1908 á Hval-
eyri við Hafnarfjörð, stúd-
entsprófi lauk hann 1927,
meistaraprófi í norrænum
fræðum 1932. Árið 1937
varð hann doktor við Ósló-
arháskóla fyrir bók sína
„Om de norske kongers
sagaer“. Um vísindastörf
dr. Bjarna farast Einari
Ól. Sveinssyni prófessor
orð á þessa leið í Morgun-
blaðinu 5. des. s. 1.:
„Vísindamennsku dr.
Bjarna einkenndi fyrst og fremst skírleiki og birta. Þegar
þar til komu kröfur um víðtæka þekkingu, bæði á viðfangs-
efnunum og því, sem um þau hafði verið ritað, glögg-
skyggni, nákvæmni og gætni þá auðnaðist honum oft, þó
að torvelt væri, að fóta sig, öðlast traustar og öruggar
niðurstöður. Lengi munu rannsóknir hans á kongasög-
um verða mönnum að liði, og langt mun þangað til þær
úreldast, og ef svo yrði, væri það vegna rita manna, sem
standa á herðum honum.“