Menntamál - 01.12.1953, Qupperneq 31
MENNTAMÁL
153
Unesco. Alþjóðleg fræðslumiðstöð verkamanna var sett á stofn
af Unesco á síðast liðnu ári 1 Chateau de la Bréviere í grennd við
París. Miðstöð þessari er ætlað að vera samkomustaður manna, sem
annast fræðslustörf fyrir verkalýðssamtök. Skulu hverjir skýra öðrum
frá reynslu sinni og bera saman bækurnar. Enn fremur eru haldin
þarna námsskeið. Meðal þeirra, sem veita þessum námsskeiðum for-
stöðu, er enski prófessorinn G. D. H. Cole.
Liberia. Fyrsta námskeiðinu um Sameinuðu þjóðirnar og stofn-
anir þeirra, sem haldið hcfur verið í Vestur-Afríku, er fyrir skömrnu
lokið. Það var lialdið í Monroviu í Líberíu. Fyrir námsskeiðinu
stóð Félag Sameinuðu þjóðanna Jiar í landi ásamt ríkisstjórn. Náms-
skeiðið sóttu 64 fulltrúar frá sjö löndum í Vestur-Afriku. Meðal sam-
þykkta, sem þarna voru gerðar, var áskorun til Unesco um að koma
upp fræðslumiðstöð fyrir Vestur-Afríku. Ályktunin var studd þeim
röktim, að alls herjar uppfræðsla væri eitt vænlegasta ráðið til að ráða
niðurlögum fáfræði, fátæktar og sjúkdóma.
Bretland. 7. júní s. 1. var þess minnzt á Bretlandi, að tvær aldir
voru liðnar frá stofnun hins mikla safns British Museum. Sir Hans
Sloane, sem nefndur hefur verið „faðir náttúrusögunnar" lézt 1753.
Hann gaf ríkinu einkasafn sitt eftir sinn dag. Með lögum frá þing-
inu sama ár var gjöfinni veitt viðtaka. Var safn Sloane fyrsti vísir
að þessu mikla safni, sem opnað var til almenningsnota 1759.
Japan. Japanir hafa boðið Unesco að halda námsskeið í Tokyo
á næsta ári. Á það að fjalla um lilutverk lista og handiða í uppeldis-
málum. Hefur boð þetta verið þegið. Sextíu ríkjum verður boðin
þátttaka i námsskeiðinu, og fjölda annarra ríkja verður boðið að senda
þangað fulltrúa. Námskeiðinu er ætlað að standa að umbótum á
kennslu í listgreinum.